Fara í efni
Menning

Sýningin Raja/Takmörk opnuð í Brúnir Galleri

Listmálarinn Birgir Rafn Friðriksson og finnska listakonan Tiina Rauni opna í dag málverkasýningu í Brúnir Galleri á bænum Brúnum í Eyjafjarðarsveit. Sýninguna kalla þau Raja / Takmörk.

Sýningin var opnuð klukkan 14.00 í dag og opið er til kl. 18.00. Svo verður daglega til 22. júlí. 

„Bæði eru að vinna með viss landamæri í sinni list, hún á goðsögulegum forsendum þar sem áferð og vinnsluaðferðin leikur meginstefið og BRF leikur sér með landslagið á mörkum hins raunverulega og ímyndaða,“ segir í tilkynningu um opnun sýningarinnar.

Í tilkynningu er tekið fram að óski fólk eftir að sjá sýninguna utan hefðbundins tíma sé því velkomið að hafa samband við staðarhaldarana, Einar og Hugrúnu, í gegnum vefsíðuna www.brunirhorse.is