Fara í efni
Menning

Sýning ársins opnuð í Sigurhæðum

Sigurhæðir. Þar verður sýning ársins 2023 opnuð í dag.

Í dag verður opnuð sýning ársins 2023 í Sigurhæðum menningarhúsi.

Dagskrá opnunarinnar hefst kl. 13 með ávarpi Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur þingkonu. Þá verður hringbekkur eftir listasmiðinn Helga Þórsson í Kristnesi afhjúpaður undir reyniviðnum sunnan við hús. Kynnir er Vilhjálmur B. Bragason.

Hlynur Hallsson, forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri, spjallar við Guðnýju Rósu Ingimarsdóttur listakonu um verkin á sýningunni í Sigurhæðum og nýútkomið Pastelverk hennar. Sett hefur verið upp heildarsýning á aðalhæð hússins með verk eftir Guðnýju Rósu. Einnig stíga fram þau William Morris, May Morris og Arts and Crafts hreyfingin, rithöfundurinn Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum, skáldkonan Kristín Sigfúsdóttir, sem og frumábúendur staðarins, Guðrún Runólfsdóttir og Matthías Jochumsson og þeirra fólk, að því er fram kemur í tilkynningu um sýninguna. 

Boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna klukkan 15. 

Sigurhæðir verða opnar til klukkan 17 í dag, en eftir það daglega til og með 11. nóvember.