Sýning ársins opnuð í Flóru í Sigurhæðum
Laugardaginn 30. maí kl. 13 verður sýning ársins 2026 opnuð í Flóru Menningarhúsi í Sigurhæðum á Akureyri. Í tilkynningu segir að Brák Jónsdóttir myndlistarmaður hafi unnið ný og fersk verk sérstaklega fyrir Sigurhæðir og eru verk hennar innan um menningararf staðarins sem og verk og vörur annarra listamanna. Á opnunardaginn verður opið á Sigurhæðum frá kl. 13-17.
Í tilkynningunni kemur fram að á sýningunni boðið sé upp á nýjar og forvitnilegar innsetningar, þar á meðal um skáldkonuna Kristínu Sigfúsdóttur úr Eyjafjarðarsveit, áhugaleikhús og sjálfsprottna skemmtun, ferðamennsku og ferðamáta, vatnahesta og Ólaf Davíðsson.
Verk Brákar eru lágmyndir úr viði og keramík og bera öll 10 verkin titilinn Sýni. Á sýningunni birtast einföld form rétt eins og sýni úr viðameiri myndheimi Brákar. Í tilkynningunni segir að „í því samhengi endurspegli verkin rannsóknargripi sem festir eru á yfirborð líkt og skordýrasýni til rannsóknar og varðveislu. Mörkin milli arkífs, forngripa og uppspunninnar líffræði eru máð, en andi vísindalegrar forvitni er auðsær, rétt eins og andinn yfir Sigurhæðum.“
Brák Jónsdóttir er fædd á Akureyri árið 1996, lauk B.A. námi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2021 og nú í vor meistaranámi við Listaakademíuna í Bergen, Noregi. Hún hlaut Hvatningarverðlaun íslensku myndlistarverðlaunanna árið 2024.
Á opnunardaginn á laugardag kl. 14 verður boðið upp á listamannsspjall með Brák. Einnig verður opið í Sigurhæðum á sunnudeginum 31. maí kl. 10-17.
Sýning ársins stendur til og með 10. október og er opið í Sigurhæðum fimmtudaga til laugardaga kl. 10-17 á tímabilinu. Aðgangseyrir er enginn og einnig er hægt að hafa samband fyrir hópa utan þess tíma.