Fara í efni
Menning

Syngjandi stjórnandi með Sinfóníunni í Hofi

Kanadíska sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn Barbara Hannigan.

Kanadíska sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn Barbara Hannigan er væntanleg til Íslands á ný og heldur tvenna tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) í júní; í Hörpu í Reykjavík 15. júní og í Hofi á Akureyri daginn eftir.

Aðeins er ár síðan Barbara kom fyrst til landsins og sló eftirminnilega í gegn með hljómsveitinni á Listahátíð í Reykjavík vorið 2022. Gagnrýnandi Fréttablaðsins sagði meðal annars um þá tónleika: „Túlkunin var draumkennd og skáldleg, það var einhver upphafin stemning yfir öllu saman,“ og „útkoman var sjaldheyrður unaður“ eins og rifjað er upp í tilkynningu frá SÍ.

Einstakur og framsækinn flytjandi

Barbara Hannigan hefur vakið feikilega aðdáun um heim allan undanfarin ár, fyrir stórfenglegan söng en ekki síður fyrir hæfileika sína sem hljómsveitarstjóri. Hún hefur starfað með öllum helstu hljómsveitum heims og hefur frumflutt yfir 85 ný tónverk, meðal annars eftir György Ligeti og Hans Abrahamsen. Þá hefur hún sungið í helstu óperuhúsum heims, meðal annars hið krefjandi titilhlutverk í Lulu eftir Alban Berg.

Hannigan hefur hlotið ótal verðlaun fyrir list sína, meðal annars Grammy-verðlaun fyrir plötuna Crazy Girl Crazy árið 2018 og hin virtu Léonie Sonning-verðlaun árið 2020. Þegar Rolf Schock-verðlaunin féllu henni í skaut rökstuddi dómnefndin ákvörðun sína með þeim orðum að Hannigan væri „einstakur og framsækinn flytjandi sem nálgast tónlistina sem hún flytur með öflugum og lifandi hætti.“

Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Draumaendir á frábæru starfsári

„Tónleikarnir verða algjör draumaendir á frábæru starfsári. Að fá Barböru Hannigan aftur til samstarfs er afar spennandi og mikill heiður. Hún hreif alla með sér þegar að hún vann með hljómsveitinni í júní á síðasta ári en hljómsveitin hreif líka Barböru. Afraksturinn var einstakur – tónlistin snerti alla sem á hana hlýddu,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

„Það er mér mikið hjartans mál að Sinfóníuhljómsveitin sé ötul við að heimsækja landbyggðina og hlakka ég mikið til að ferðast með hljómsveitinni til Akureyrar og leyfa Norðlendingum og öðrum gestum að njóta þess að sjá og hlusta á þessa eintöku listakonu og Sinfóníuhljómsveit Íslands,“ segir Lára Sóley 

Á efnisskrá tónleikanna í júní verða þrjú hrífandi tónverk þar sem ljóðræna og leikgleði Barböru Hannigan fá að njóta sín jafnt í söng og hljómsveitarstjórn, segir í tilkynningu frá SÍ. Tvö verkanna teljist til öndvegisverka tónbókmenntanna, hin svonefnda Kraftaverkasinfónía Josephs Haydn nr. 96 og fjórða sinfónía Gustavs Mahler, Himnasælusinfónían, þar sem Barbara fer með sópranhlutverkið auk þess að stjórna hljómsveitinni. „Á undan sinfóníu Mahlers hljómar nýtt og spennandi verk íranska tónskáldsins Golfam Khayam, en hún nýtur mikillar velgengni fyrir tónsmíðar sínar. Leiðir þeirra Barböru Hannigan lágu saman eftir þátttöku Hannigan í samstöðutónleikum með konum í Íran og er þessi stutta og spunakennda tónhugleiðing samin með hana í huga. Sinfónía Haydns er ein af hinum snilldarlegu Lundúnasinfóníum hans þar sem kímnigáfa hans og fullkomið vald á forminu njóta sín til fulls. Himnasælusinfónía Mahlers er sömuleiðis í sérflokki meðal höfundarverka hans – klassísk í formi og aðgengileg en full af barnslegri einlægni, ást á náttúrunni og tilfinningu fyrir hinu yfirskilvitlega.“ 

Efnisskrá tónleikanna:

  • Franz Josep Haydn: Sinfónía nr. 96 í D-dúr (Kraftaverkið)
  • Golfam Khayam: I am not a tale to be told
  • Gustav Mahler Sinfónía nr. 4 í G-dúr, Himnasælusinfónían

Vert er að geta þess að almenn miðasala hefst á morgun, mánudaginn 20. mars á sinfonia.is og mak.is.