Fara í efni
Menning

Sýna fræðsluleikrit um heilabilun – Ef ég gleymi

Ef ég gleymi, fræðsluleikrit um heilabilun, verður sýnt í menningarhúsinu Hofi á morgun, fimmtudaginn 21. september klukkan 16.30 í kjölfar ráðstefnu Alzheimersamtakanna. Það er leikkonan Sigrún Waage sem stendur að viðburðinum sem tekur u.þ.b. eina klukkustund en Sigrún er einn af fyrirlesurum á ráðstefnu Alzheimersamtakanna, með kynningu á leiknu fræðsluefni um heilabilun.

Eftir sýninguna verða opnar umræður með Bryndísi B. Þórhallsdóttur og séra Hildi Eir Bolladóttur. Miðasala er á www.mak.is og www.tix.is

Ef ég gleymi var hluti af lokaverkefni Sigrúnar Waage í M.Art.Ed við Listaháskóla Íslands vorið 2022. Tilgangur með framkvæmdinni var tvíþættur, að hennar sögn. Annars vegar að nýta þann miðil sem leikritið er til að fræða og vekja fólk til umhugsunar um Alzheimersjúkdóminn og skapa umræðu um hann. Hins vegar var tilgangur framkvæmdarinnar að fá fram einhverjar vísbendingar um hvort leikritið gæti miðlað fræðslu um Alzheimersjúkdóminn.

Sigrún útskrifaðist með BFA gráðu í leiklist frá New York University Tisch School of the Arts. Hún er með Diploma í söng, söngkennslu og raddþjálfun frá Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn og M.Art.Ed gráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Sigrún hefur leikið fjölda hlutverka í Þjóðleikhúsi, Borgarleikhúsi, í sjónvarpi og kvikmyndum. Hún framleiddi og lék aðalhlutverkið í leikritinu Ég heiti Guðrún í samstarfi við Þjóðleikhús árið 2018.