Sumarveisla Pastel í Flóru menningarhúsi
Aðstandendur Pastel ritraðarinnar fagna tíu ára afmæli hennar með Sumarveislu Pastel laugardaginn 1. ágúst kl. 13-15 í Flóru menningarhúsi í Sigurhæðum. Pastel ritin eru orðin 42 talsins. Öll verkin má sjá á vefnum pastel.is.
Í Sumarveislu Pastel koma fram ýmsir listamenn úr röðum Pastel: Árni Friðriksson, Ester Hilmarsdóttir, Gerður Kristný, Hildur Eir Bolladóttir, Hlynur Hallsson, Jónína Björg Helgadóttir, Kári Tulinius, Kristín Þóra og Samúel Lúkas.
Aðgangseyrir er enginn, en viðburðurinn er samfjármagnaður, eins og það er orðað í tilkynningu, af Uppbyggingasjóði SSNE, Menningarsjóði Akureyrarbæjar, Akureyrarbæ, ráðuneyti menningar, háskóla og nýsköpunar, Útgáfufélaginu, Flóru menningarhúsi og síðast en ekki síst framlagi Pastella sjálfra.