Fara í efni
Menning

Sumarsmiðjur, sýning Dóru og fullt af tónlist

Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í hverri viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.

Tónleikar

  • BREK – Græna hattinum, fimmtudag 6. ágúst kl. 21. BREK var meðal annars tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki þjóðlagatónlistar tvö ár í röð og hlaut verðlaunin fyrir plötu ársins í þjóðlaga- og heimstónlist árið 2022 fyrir sína fyrstu plötu. Síðan þá hefur Brek komið fram víða um heim, á hátíðum m.a. í Bandaríkjunum, Finnlandi, Noregi, Danmörku og Írlandi. Ný plata er væntanleg.
  • Jasstríó Moritz Christiansen – Minjasafninu, föstudaginn 7. ágúst kl. 20. Tríóið er frá Hamborg en er á tónleikaferðalagi um Ísland. „Tríóið flytur léttan norrænan djass þar sem áhersla er lögð á skýrar laglínur og það að segja sögur í gegnum tónlist,“ segir í kynningu.
  • Bogomil Font og Greiningardeildin – Græna hattinum, föstudag 7. ágúst kl. 21. Félagarnir úr Hljómskálanum, þeir Sigtryggur Baldursson, Bragi Valdimar og Kiddi Hjálmur fara fyrir þessari fjölskipuðu og hoppandi fersku gleðisveit og mæta með glænýja sumarplötu í farteskinu sem kallast Haf þú ekki áhyggjur af því. Þar er að finna ýmis hressileg kulda-kalypsólög sem þeir hafa sent frá sér undanfarin misseri.
  • Tónleikar í Pakkhúsinu – Pakkhúsið, Hafnarstræti 19, laugardag 8. ágúst kl. 20. „Fluttir verða klassískir smellir; íslenskir og enskir ásamt vel völdum frumsömdum lögum,“ segir í kynningu. Bandið skipa söngkonurnar Ísabella Sól og Sóley Eva og á hljóðfærin leika Emil Andri, Friðrik Aðalgeir og Theodór Marvin.
  • ÞAU – Leyni, laugardag 8. ágúst kl. 21. ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk og gítar- og trommuleikarinn Gaddi. „Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim á sviði,“ segir m.a. í kynningu.
 
 
Hljómsveitin BREK kemur fram á Græna hattinum á fimmtudagskvöldið.

Viðburðir

    • Hjólabrettahittingur með leiðbeinendum (18+) – Braggaparkinu, miðvikudag 5. ágúst kl. 20. Tveggja tíma hjólabrettahitting/session þar sem byrjendur sem lengra komin geta mætt og haft gaman með skemmtilegum hópi. Leiðbeinendur verða á staðnum til aðstoðar og gefa góð ráð. Mælt er með því að þátttakendur komi með sitt eigið hjólabretti en möguleiki er á að fá lánsbretti.
    • WindWorks í norðri – Blásturshljóðfærahátíð með tónleikum víða um Norðurland, frá föstudeginum 7. ágúst til föstudagsins 14. ágúst. Á Akureyri verða tvisvar tónleikar í Listasafninu og Akureyrarkirkju og einu sinni í Flugsafninu.
    • Sumarsmiðjur fyrir 7-12 ára – Amtsbókasafninu, mánudag, þriðjudag og miðvikudag, 11.-13. ágúst. Amtsbókasafnið á Akureyri býður krökkum á aldrinum 7- 12 ára að koma á safnið og nýta ímyndunaraflið í allskonar skemmtilegum smiðjum. Smiðjurnar eru á milli klukkan 9 og 11 og er krökkunum frjálst að koma og fara að vild allt eftir áhuga og úthaldi.

Blásturshljóðfærahátíðin WindWorks hefst á föstudaginn og stendur í viku. Fjölbreyttir blásturshljóðfæratónleikar víða á Norðurlandi.

Listsýningar

Dóra Emils opnar myndlistarsýningu í Mjólkurbúðinni á laugardaginn kl. 14.


Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.