Súlur enn komnar út, fjölbreyttar að vanda
Ársrit Sögufélags Eyfirðinga, Súlur, er komið út, alls 160 blaðsíður, hlaðið fróðleik og fjölda ljósmynda, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.
- Ingibjörg Sigurðardóttir fjallar um nöfnu sína, leikkonuna Ingibjörgu Steinsdóttur.
- Hinn kunni tónlistarmaður, Rafn Sveinsson, segir af tónlistarferli sínum í greininni „Heldurðu að þú getir spilað þig í gegnum lífið, ungi maður?“
- Sigurði heitnum Jósefssyni frá Torfufelli verður tíðrætt um hina forvitnilegu Hólsgerðislaug.
- Hermann Óskarsson rifjar upp menntaskólaárin 1968-1972.
- Hákarla-Jörundur verður Helga Laxdal að umfjöllunarefni.
- Hinn kunni fróðleiksmaður um hús, Arnór Bliki, segir okkur af stórvirkjum Magnúsar á Grund.

Guðni Th. Jóhannesson hélt í febrúar á þessu ári afar vel sóttan fyrirlestur á Minjasafninu á Akureyri um „Othello-slaginn“. Ljósmyndin er tekin við það tækifæri. Mynd: Skapti Hallgrímsson
- Guðni Th. Jóhannesson rifjar upp Othello-slaginn 1973 þegar menntaskólanemar gerðu aðsúg að breskum togarasjómönnum á Akureyri.
- Jón Hjaltason skrifar um brauðstrit hjónanna og foreldra Nonna, Sveins Þórarinssonar og Sigríðar Jónsdóttur, á Akureyri.
- Þá er getið tveggja nýútkominna bóka og minnst okkar góða félaga, Bernharðs Haraldssonar skólameistara en Bernharð andaðist á árinu sem leið.
Vakin er athygli á nýrri heimasíðu Sögufélags Eyfirðinga, https://www.sogufelageyfirdinga.is/ „þar sem er að finna m.a. eldri hefti Súlna og – sem ekki er minnst um vert – þar má gerast með næsta einföldum hætti áskrifandi að Súlum. Einnig eru nýir áskrifendur að Súlum eru boðnir velkomnir í síma 863-7529.“

Rafn Sveinsson birtir mikinn fjölda ljósmynda með grein sinni enda víða komið við og spilaði með fjölda tónlistarmanna. Hér er hann í hljómsveitinni Casablanca. Rafn er á trommunum, þá Árni Þorvaldsson, Grétar Ingvarsson og Ólafur Héðinsson.

Steindór Steindórsson á Sal. Steindór var skólameistari þau fjögur ár sem greinarhöfundur, Hermann Óskarsson, stundaði nám við skólann.