Fara í efni
Menning

Stóri hjóladagurinn í Kjarnaskógi

Stóri hjóladagurinn verður haldinn í Kjarnaskógi í samstarfi Akureyrarbæjar og Hjólreiðafélags Akureyrar, í tilefni af því að á laugardaginn hefst evrópsk samgönguvika.

Þátttakendur eru hvattir til að mæta hjólandi inn í Kjarnaskóg og má nefna til viðmiðunar að fyrir miðlungsvant hjólreiðafólk gæti tekið um 20-30 mínútur að hjóla frá Ráðhústorgi í Kjarnaskóg. Ætlunin er að hittast við leikvöllinn sunnan við strandblakvellina, völundarhúsið og ærslabelginn og hjóla þaðan saman um svæðið með fólk frá Hjólreiðafélagi Akureyrar í broddi fylkingar. Að hjólafjörinu loknu verður boðið upp á grillaðar pylsur og drykki á meðan birgðir endast.