Fara í efni
Menning

Stolt af þessum ungu og hæfaleikaríku krökkum

Velheppnaðir tónleikar Upptaktsins, tónsköpunarverðlauna barna og ungmenna, fóru fram í Menningarhúsinu Hofi á sunnudaginn.

„Verkin í ár voru afar fjölbreytt, en þar mátti heyra nýklassísk verk, popp-,rokk-, söngleikja-, jazz- og tölvuleikjalag. Lokapunktur Upptaktsins er svo þegar lögin ellefu verða gefin út á Youtube,“ segir á vef Menningarfélags Akureyrar (MAk).

Á tónleikunum voru 11 verk 13 ungra tónskálda á aldrinum 11-15 ára frá Akureyri, Eyjafjarðarsveit og Hrísey flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum. Verkin 11 voru valin úr innsendum tónlistarhugmyndum, en börn í 5. -10. bekk í skólum á Norðurlandi eystra gátu tekið þátt í verkefninu.

Kristín Sóley Björnsdóttir, verkefnastjóri Upptaktins og viðburðastjóri Menningarhússins Hofs segir tónleikana hafa tekist afar vel. „Þetta var sannkölluð uppskeruhátíð eftir sköpunarvinnu ungu tónskáldanna, útsetjara, tónlistarstjóra og hljóðfæraleikara. Það er ekki á hverjum degi sem ellefu ný tónverk eru samin af ungu fólki, útsett af fagfólki og flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum við bestu aðstæður. Við erum svo stolt af þessum ungu hæfaleikaríku krökkum, þau eru sannarlega kröftug fræ sem munu með áframhaldandi vökvun blómstra í samfélaginu okkar. Þvílíkt ríkidæmi – framtíðin er sannarlega þeirra og ég efast ekki um að við fáum að njóta blómanna sem út spretta á komandi árum með þeim og enn fleiri þátttakendum í Upptaktinum,“ segir Kristín Sóley á vef MAk.

Um útsetningu verkanna fyrir hljómsveit sáu þau Kristján Edelstein og Greta Salóme, en Greta er einnig tónlistarstjóri Upptaktsins.

Ungu tónskáldin og verk þeirra:

  • Amanda Eir Steinþórsdóttir – Two sided love story
  • Eiður Reykjalín Hjelm – Naughty elves
  • Gísli Erik Jónsson – Hrafn
  • Gísli Freyr Sigurðsson – Out of my life
  • Haukur Skúli Óttarsson og Ragnheiður Birta Hákonardóttir – Spunaslóð
  • Heimir Sigurpáll Árnason – Láttu ætíð ljós frá þér
  • Helga Björg Kjartansdóttir – Random hljómar í herberginu mínu
  • Jóhann Valur Björnsson – Adamant
  • Poets, bullets and society: Amanda Eir Steinþórsdóttir, Mahaut Ingiríður Matharel og Sólrún Alda Þorbergsdóttir– Katherine
  • Óðinn Thomas Atlason – Continuum
  • Torfhildur Elva F. Tryggvadóttir – Vordans

Hljómsveitina skipuðu:

  • Ásdís Arnardóttir – selló
  • Emil Þorri Emilsson – slagverk
  • Greta Salóme – fiðla og söngur
  • Ívar Helgason – söngur
  • Jón Þorsteinn Reynisson – harmonikka
  • Kristján Edelstein – gítar
  • Petrea Óskarsdóttir – þverflauta
  • Risto Laur – flygill
  • Tómas Leó Halldórsson – bassi
  • Vilhjálmur Ingi Sigurðsson – trompet

Upptökustjóri: Haukur Pálmason. Hljóðmenn: Árni F. Sigurðsson og Bernharð Sveinsson

Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE.