Fara í efni
Menning

Stefán Elí og „Tíðni hjartans“ annað kvöld

Listamaðurinn Stefán Elí heldur tónleika í Akureyrarkirkju annað kvöld, laugardag 4. nóvember, klukkan 20.00. Tónleikana kallar hann Tíðni hjartans. 

„Stefán Elí er fjölhæfur og litríkur listamaður. Stefán er fæddur og uppalinn á Akureyri og hóf tónlistarferil sinn 16 ára að aldri. Tónlist Stefáns er einstök, falleg, djúp og framandi og hentar bæði ungum sem öldruðum. Hann hefur tekið upp tónlist og komið fram víða um heiminn,“ segir í tilkynningu.

„Stefán vefur draumkennda hljóðheima og flytur frumsamin lög. Tónlist hanns er einstaklega flæðandi en einnig rytmíst og grípandi. Stefán syngur ásamt því að leika á gítar, flautu, munnhörpu og fleiri framandi hljóðfæri.“ Í tilkynningu segir að Stefán Elí sæki sér innblástur úr fjölmörgum áttum og sé nýlega kominn til landsins eftir langt ferðalag um Mið-Ameríku og Suðaustur-Asíu.

Aðgangseyrir er 3.000 krónur og tekið er fram í tilkynningu að á viðburðinum verði til sölu itrík og lifandi myndlistarverk Stefáns.

„Viðburðurinn hentar börnum, öldruðum og öllum þar á milli,“ segir í tilkynningunni. Miðar eru seldir við innganginn en einnig er hægt að kaupa miða fyrirfram með því að hafa samband við Stefán Elí á Facebook eða með því að senda honum póst á stefanelih@gmail.com