Fara í efni
Menning

Stefán Elí: nýtt lag og kveðjutónleikar

Stefán Elí, tónskáld og myndlistarmaður, var að senda frá sér nýtt lag og næsta laugardag heldur hann tónleika í Akureyrarkirkju; hugljúfa og hjartahlýandi kveðjutónleika, eins og hann orðar það, áður en hann heldur til Gvatemala síðar í nóvember.

Stefán Elí fæddist og ólst upp á Akureyri. Hann hóf tónlistarferil aðeins 16 ára og hefur síðan gefið út og spilað. „Stefáni er annt um fólk og náttúruna sem speglast bæði í lögum hans sem og í málverkunum,“ segir í tilkynningu.

Tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju laugardaginn 5. nóvember klukkan 17.00. Aðgangseyrir er 3.000 krónur.

Miðar eru seldir við innganginn en einnig er hægt að hafa samband við Stefán Elí á Facebook eða stefanelih@gmail.com til að kaupa miða fyrirfram. Á tónleikunum mun Stefán Elí færa einum heppnum gesti málverk að gjöf! 

Nýja lagið má finna á öllum helstu streymisveitum – til dæmis hér

Fjölhæfur listamaður

„Í sumar hélt Stefán málverkasýningu í Reykjavík þar sem hann seldi 2 málverk fyrir 144.444 kr. hvort. Síðustu mánuði hefur Stefán unnið í samstarfi við góðgerðarsamtökin EYEAMU í Gvatemala. Stefán gefur hluta þeirra peninga sem hann þiggur í skiptum fyrir málverk sín, tónlistarkennslu og hugleiðslu leiðsögn til styrktar fjölskyldna og barna í Gvatemala. Í nóvember stefnir Stefán á að fara aftur út sjálfur.“

Stefán er fjölhæfur listamaður og „hann sýnir það svo sannarlega á nýjustu útgáfu sinni Aho Bufo. Á nýja tungli októbermánaðar gaf Stefán frá sér nýtt lag sem er ólíkt allri þeirri tónlist sem hann hefur sent frá sér til þessa. Lagið tekur hlustandann á ferðalag um dularfulla veröld og opnar fyrir tengingu til heima handan. Stefán kannar mannsröddina á magnaðan máta og syngur lagið af heilu hjarta og sál.“

Nýja lagið er sungið á fleiru en einu tungumáli og tengir saman marga ólíka heima sem eiga þó allir eitthvað sameiginlegt, segir listmaðurinn. „Stefán kallar inn frumorkurnar Shiva og Shakti sem eiga uppruna sinn að rekja til Indlands. Síðar syngur hann þakklætisbæn á Nahuatl sem er frumbyggja tungumál frá Mexíkó. Þetta gæti verið óhefðbundið í augum og eyrum margra en Stefáni tekst á frábæran hátt að tengja þetta allt saman og úr því verður stórbrotið sköpunarverk.“