Fara í efni
Menning

Spila og syngja hástöfum í Pakkhúsinu í kvöld

Hljómsveitin Hástafir verður „frumsýnd“ í kvöld þegar hún heldur tónleika í Pakkhúsinu við Hafnarstræti á Akureyri. Fimm norðlensk ungmenni skipa Hástafi en það er Kex Stúdíó sem stendur fyrir viðburðinum. Hljómsveitin hefur æft í húsnæði Kex Stúdíó, „vintage“ fataverslun sem opnuð var við Týsnes á síðasta ári og þá sögðu eigendurnir einmitt að þeir vildu „skapa ramma fyrir hæfileikaríkt listafólk til þess að koma sér á framfæri.“

Söngkonar hljómsveitarinnar eru Sóley Eva Magnúsdóttir, annar eigandi Kex Stúdío, og Ísabella Sól Ingvarsdóttir. Í hljómsveitinni eru einnig Emil Andri, Friðrik Aðalgeir – Frissi – og Theodór Marvin – Teddi. Öll hafa þau margra ára reynslu í tónlist en þetta er í fyrsta sinn sem þau koma fram sem hljómsveit. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og miðaverð er 2.000 krónur.

Mjög spennt

„Hugmyndin fór á flug fyrir rúmlega einum og hálfum mánuði. Akureyri er gríðarlega mikill listabær og mikið um að vera, en það getur verið erfitt að komast að. Við ákváðum því í raun bara að skapa tækifærið sjálf og skipuleggja eigin tónleika sem munu bara bæta við flóruna í menningarlífi á Akureyri! Það er samt meira en að segja það að halda tónleika og við erum orðin mjög spennt að sjá afraksturinn,“ segir Ísabella Sól.
 

Hljómsveitin Hástafir á æfingu í húsnæði Kex Stúdíó við Týsnes á Akureyri.

Upphaflega stóð til að tónleikarnir yrðu í Kex Stúdíó en hugmyndin vatt upp á sig og því ákváðu þau að leita að stærra húsnæði, „en við erum með metnaðarfullar hugmyndir um framtíðina og ekkert ólíklegt að það verði aðrir minni tónleikar í Kex Studio húsnæðinu.“
 
Hljómsveitin skipuleggur tónleikana að öllu leyti með aðstoð vina og vandamanna og hjálp fyrirtækja á svæðinu. Þau hafa m.a. byggt svið í Pakkhúsinu. „Við erum að græja allt sem við getum sjálf þar sem við viljum halda kostnaði í algjöru lágmarki,“ segir Ísabella Sól. „Seinustu dagar hafa aðallega farið í að byggja sviðið sem er gert úr viðarpallettum og plötum, en Sóley saumar búninga á okkur. Við erum auk þess gríðarlega þakklát fyrir samfélagið hérna fyrir norðan. Skógarböðin eru til að lána okkur hljóðkerfi, við fengum að nota veislusalinn í Pakkhúsinu sem tengdaforeldrar mínir eiga og höfum fengið hjálp frá vinum og fjölskyldu við sviðsetningu og fleira. Það er öllum þeim að þakka að við náum að halda aðgangseyrinum svo lágum, líklega með ódýrustu tónleikum landsins!“
 
Að syngja hástöfum
 
Nafn hljómsveitarinnar, Hástafir, er smá orðaleikur, segir Ísabella Sól, því margir eiga það til að „syngja hástöfum“. „Það verður klárlega markmið kvöldsins, bæði fyrir okkur og áhorfendurna. Við viljum reyna að skapa smá „Græna hatts“-stemningu en lagalistinn er aðallega samsettur af popp- og rokk lögum,“ segir Ísabella.
 
Hástafir flytja bæði frumsamin lög, sem öll eru á íslensku og „samin af öllum meðlimum hljómsveitarinnar í bland. Auk þess verða skemmtilegir slagarar á bæði ensku og íslensku, það ættu allir að fá að heyra eitthvað við sitt hæfi og hafa gaman.“
 
„Meðlimirnir koma hver úr sinni áttinni en við erum öll að norðan. Ég og Sóley munum syngja en við höfum verið vinkonur í rúman áratug og gólandi enn lengur. Sóley og Frissi, trommarinn, kynntust í gegnum samfélagsmiðla fyrir einhverjum árum, hann sá myndband sem hún birti af sér syngja frumsamið lag og hrósaði henni fyrir. Það lag verður m.a. flutt á tónleikunum en síðan þá hafa þau verið að gigga saman á ýmsum viðburðum. Við Sóley kynntumst Emil bassaleikara í kringum lagasmiðju á vegum listamannsins Flammeus en Emil hefur verið í Tónlistarskóla Akureyrar í mörg ár.“
 
Gítarleikarinn datt í tröppunum ...
 
„Það er eiginlega frekar fyndin saga hvernig Teddi, rafmagnsgítarleikarinn, kom inn. Hann vinnur í Skógarböðunum með kærasta mínum og ég þekkti aðeins til hans, vissi m.a. að hann væri góður á gítar. Nafnið hans var búið að koma upp sem mögulegur fimmti meðlimur hljómsveitarinnar en ég mætti honum svo í ræktinni þar sem hann datt í tröppunum beint fyrir framan mig. Ég nýtti tækifærið til að spyrja hann hvort hann vildi vera með í bandinu. Það var eiginlega ekki hægt að segja nei við mig eftir svona vandræðalega upplifun!“