Fara í efni
Menning

Sólveig Dagmar og „Ró í náttúrunni“

Sólveig Dagmar Þórisdóttir opnar í dag málverkasýninguna Ró í náttúrunni í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélags Akureyrar í Listagilinu.

Sýningin stendur til 28. september, opið er alla virka daga frá klukkan 15.00 til 18.00 og klukkan 14.00 til 17.00 um helgar. Sýningaropnun er á milli klukkan 17.00  og 18.00 í dag og eru allir velkomnir.

Sólveig Dagmar hefur verið starfandi listamaður að Korpúlfsstöðum í Reykjavík frá árinu 2007. Hún á langan starfsferil að baki sem myndlistarmaður, grafískur hönnuður og hagnýtur menningarmiðlari, að því er segir í tilkynningu. Þar segir að hún hafi einnig starfað við ökuleiðsögn ferðamanna í yfir tvo áratugi fyrir stærstu ferðaþjónustufyrirtæki Íslands og hún sé jafnframt eigandi Create Iceland – Travel ehf.

„Myndlistarmaðurinn tengir listsköpun sína við sköpunarkraft í ró og flæði í náttúrunni og málar oftast á staðnum á ferðalögum sínum. Þannig miðlar hún myndlist sinni á áhrifaríkan hátt og sýnir sig jafnframt í vídeóverki við undirbúning málverka sinna,“ segir í tilkynningunni. Sólveig Dagmar hefur ferðast víða um Ísland og einnig til Tenerife, til að vinna málverkin sem sýnd eru. Málverkin á sýningunni eru flest unnin síðastliðin þrjú ár.

„Sólveig Dagmar kennir einnig hugmyndavinnu ferðaþjónustuaðilum, sem dæmi Strandamönnum og Vestfirðingum árið 2011 í grunnskólanum á Hólmavík. Þannig styður Sólveig við mennta-og menningartengda ferðaþjónustu með þekkingu fyrir alla þá sem þurfa. Mjög mikilvægt er listamanninum, að kenna einstaklingnum að skapa með list sinni, í ró úti í „Listasalnum náttúrunni“. Málverkin eru þannig uppspretta af mikilli vinnu myndlistamannsins með það í huga að fá innsýn í hugarheim, þroska og dýpt, sem einstaklingurinn þroskar með sér úti. Málverkin eru þannig unnin í því flæði og eru afrakstur af ferðalögum hennar víða. Nú hefur hún einnig hafið kennslu í teikningu og málun. Sólveig Dagmar var gestalistamaður Hveragerðisbæjar í listhúsi þeirra „Varmahlíð“ í júnímánuðunum árin 2009 og 2021.“

Hér er heimasíða Sólveigar, þar sem m.a. er listi yfir allar sýningar hennar

Hér er viðburðasíða listamannsins.