Sólför sendir frá sér sitt fjórða lag
Í síðustu viku gaf akureyrska rokksveitin Sólför út sitt fjórða lag. Lagið heitir Red Love og í tilkynningu frá sveitinni er því lýst sem „grípandi útvarpsrokki með 80’s yfirtónum.“
Ívan Mendez, söngvari sveitarinnar, segir texta lagsins fjalla um ástarsamband milli manns og bíls. „Ég byggði hann lauslega á atviki sem henti Fúsa bassaleikara, þegar honum áskotnaðist bíll sem þurfti svo að fara í pressuna. Mér fannst það vel við hæfi því markmið okkar var að semja gott lag til að hlusta á í bílnum. Svona sólgleraugun á, rúðurnar niður og tónlistin í botni lag. Þetta er allavega sumarlagið frá okkur í ár,“ segir Ívar.
Sólför kemur næst fram á tónleikahátíðinni MBS (Mannfólkið breytist í slím), helgina 16.-18. júlí.
Hér má hlusta á nýja lagið: