Menning
Sólarpönk, ljóskur og Inspector Spacetime
09.03.2026 kl. 15:00
Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Leiksýningar
- Birtíngur hjá Leikfélagi Akureyrar. Samkomuhúsið, föstudag og laugardag 13. og 14. mars kl. 20.00.
- Ljóska í gegn - Frumsýning Leikfélags Menntaskólans á Akureyri föstudaginn 13. mars í Hamraborg í Hofi. Einnig sýnt sunnudaginn 15. mars kl. 16:00 og 20:00. Aðeins tvær helgar og 6 sýningar í boði.
- Átta konur - Leikfélag Hörgdæla að Melum. Föstudaginn 13. mars kl. 20:00 (uppselt). Laugardag 14. mars kl. 20.00.
- Tom, Dick & Harry - Freyvangsleikhúsið. Föstudag 13. mars (uppselt) og laugardag 14. mars kl. 20.00.
Tónleikar
- Á móti sól á Græna – Föstudaginn 13. mars kl 21.00.
- Rumours / Til heiðurs Fleetwood Mac – Græni hatturinn. Stefanía Svavars, Magni og Margrét Eir syngja. Hljóðfæraleikarar úr Stjórninni og Todmobile. Laugardagskvöld 14. mars kl. 21:00.
- Inspector Spacetime á Leyni – Laugardagskvöldið 14. mars kl. 21.00. Innri salurinn á Leyni.
- Tólf tóna kortérið - Dimitrios Theodoropoulos frumflytur frumsamda tónverkið Wonder Woman og spinnur yfir það á tvennum ör-tónleikum á Listasafninu á Akureyri. Laugardagur 14. mars kl. 15:00 og 16:00.
Viðburðir
- Sólarpönk: Bjartsýnishátíð – 13.-15. mars í Deiglunni (og víðar). Hátíðin samanstendur af listasmiðjum, vinnustofum, samtali og samveru. Fjölbreytt dagskrá - sjá HÉR.
- Þriðjudagsfyrirlestur á Listasafninu: Eva Björk Káradóttir um Hvalasafnið á Húsavík og listræna nálgun við að tengja saman vísindi, menningu og náttúru. Þriðjudaginn 10. mars kl. 16:15.
- Strá fyrir straumi / Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1809-1871. Fyrirlestur Erlu Huldu Halldórsdóttur prófessors í sagnfræði við HÍ. Hluti fyrirlestrarraðar Akureyrarakademíunnar, Sagnfræðingafélags Íslands og Minjasafnsins á Akureyri, 'Fortíðin í nýju ljósi'. Aðalstræti 58, 12. mars kl 17:00.
- Á þetta að vera fyndið? - Uppistand á LYST í Lystigarðinum – Arnór Daði Gunnarsson, Svava Björk Ólafsdóttir, Baddi Ingimarsson og Snæfríður Ingadóttir fara með gamanmál. Föstudagskvöldið 13. mars kl. 20.00.
- Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
- Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 10. mars er næsti hittingur.
- Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
- Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.
- Salsakvöld og ókeypis prufutími í salsa – Vamos, fimmtudaginn 12. mars kl. 20-22.30. Öll velkomin.

Birtan snýr aftur! Nú hækkar sól með hverjum deginum og það er líka bjart yfir menningarlífinu á Akureyri. Bjartsýnishátíðin Sólarpönk verður haldin í fyrsta sinn um helgina, Birtíngur er enn á fjölum Samkomuhússins og söngleikurinn Ljóska í gegn (verkið er byggt á kvikmyndinni Legally Blonde) verður frumsýndur hjá LMA í Hofi.
Listasýningar
- Sköpun bernskunnar 2026 – Listasafnið á Akureyri. Samstarf listakonunnar Sunnu Svavarsdóttur og barna í Tröllaborgum, Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
- GAMBIT – Myndlistasýning Freyju Reynisdóttur í Mjólkurbúðinni. Opið 13.-15. mars kl. 13-18.
- Guðmundur Ármann: Aðflæði – Yfirlitssýning listamannsins, sem spannar 65 ára feril. Sýnt á Listasafninu á Akureyri, en sýningin stendur til 4. maí 2026.
- Björk Viggósdóttir - Hreyfing fyrir sjón / Movement for vision – Sýning á Listasafninu á Akureyri. Stendur til 3. maí 2026.
- Vítahringur / Vicious circle - Listasýning Ólafs Sveinssonar og Boaz Yosef Friedman í Mjólkurbúðinni. Opið laugardag 28. feb og sunnudag 1. mars á milli 14-17.
- Litasinfóníur - myndlistasýning Rósu Njálsdóttur á Bókasafni HA. Þar eftir er opið á opnunartíma bókasafnsins.
- Undir berum himni - Jóhannes Sveinsson Kjarval. Sýning á teikningum og skissum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 17. maí 2026.
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.