Fara í efni
Menning

Sögur af draugnum Reyra í Hofi á sunnudag

Ásdís Arnardóttir sellóleikari og fráfarandi formaður Tónlistarfélags Akureyrar. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir fjölskyldusýningunni Sögur af draugnum í Hofi á sunnudaginn í tilefni Hrekkjuvökunnar.

„Þetta er án efa stærsta verkefni okkar þessi 10 ár sem ég hef verið í stjórninni,“ segir Ásdís Arnardóttir, fráfarandi formaður Tónlistarfélagsins, við Akureyri.net. „Þetta verður stórkostleg fjölskyldusýning.“

Á tónleikunum hittir draugurinn Reyri löngu látin tónskáld og sýningargestir fá að kynnast þeim og tónlist þeirra. „Nornin Kíríkí stendur fyrir ýmsum hrekkjum og Næturdrottningin mætir á svæðið,“ segir í tilkynningu.

Óður til óhljóðsins!

Frumflutt verður lagið Akureyrardraugurinn eftir Daníel Þorsteinsson við texta Hjörleifs Hjartarsonar. „Verkið er nokkurs konar óður til óhljóðsins sem var að æra Akureyringa og náði hámarki síðsumars 2020. Í upphafi er spurt: Hvað er þetta ámátlega og óhugnaðarhljóð sem einkum heyrist þegar dimma fer? Fram komu á sínum tíma margvíslegar skýringar og fullyrðingar um uppruna hljóðsins, engin endanleg niðurstaða fékkst þó í málið en um eitt voru þó öll þau sammála sem skoðuðu það og greindu: Þetta var tónninn Gís.“

Tónverkið Akureyrardraugurinn hverfist um þennan tón sem er kjarnatónn verksins, hann smýgur um hvar sem hann finnur glufu og gengur bókstaflega aftur og fram um verkið frá upphafi til enda, að því er segir í tilkynningunni. Frumflytjendur verksins á sunnudaginn verða Hlín Pétursdóttir Behrens sópran, Barnakór Akureyrarkirkju undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar og tónskáldið Daníel Þorsteinsson sem leikur á píanó.

Allir flytjendur í sýningunni eru þessir:

  • Draugurinn Reyri: Margrét Sverrisdóttir
  • Næturdrottningin/Kírikí: Hlín Pétursdóttir-Behrens
  • Píanóleikari og tónskáld: Daníel Þorsteinsson
  • Söngtextahöfundur: Hjörleifur Hjartarson
  • Blásarakvintettinn Norð-Austan:
  • Flauta: Hildur Þórðardóttir
  • Óbó: Gillian Haworth
  • Klarinett: Vigdís Klara Aradóttir
  • Fagott: Dagbjört Ingólfsdóttir
  • Horn: Ella Vala Ármannsdóttir
  • Barnakór Akureyrarkirkju undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar
  • Dansarar úr DSA - dansstúdíó Alice
  • Höfundur: Pamela De Sensi
  • Leikstjórn: Vala Fannell
  • Tónlist: Mozart, Gounod, Daníel Þorsteinsson og fleiri

Aðgangseyrir er 2.500 krónur. Miðasala er á mak.is og tix.is 

  • Sýningin nýtur stuðnings Menningarfélags Akureyrar, Sóknaráætlunar Norðurlands eystra, Barnamenningarsjóðs, List fyrir alla, Tónlistarsjóðs og Töfrahurðar.