Menning
Sleggjan – lag Jóa Bjarka til móður sinnar
10.08.2026 kl. 14:45
Tónlistarmaðurinn Jóhannes Bjarki Sigurðsson, kallaður Jói Bjarki, sendi nýverið frá sér sér lagið Sleggjan. Lagið kveðst hann hafa samið til móður sinnar í vor, þegar hún var mjög veik og vart hugað líf. „Í dag er hún þó komin heim og er mikil endurhæfing framundan. En við fjölskyldan tökum þeirri stöðu fegins hendi,“ segir hann.
„Ég samdi bæði lag og texta, söng allar raddir, spilaði á gítara og bassa ásamt öðrum hljóðfærum. Jú, og ég blístraði eitthvað líka,“ segir Jói Bjarki í léttum dúr. Titill lagsins er þannig til kominn, segir hann, „að hann pabbi minn hefur lengi notað þetta gælunafn á mömmu – Sleggjan – vegna mikillar þrautseigju hennar.“
Hér má finna lagi á Spotify:
https://open.spotify.com/track/2DmLm8cWIdjue2flBm8lGt?si=Q18YMsRYTqSUpQt7IX7hoA&utm_source=copy-link
Hér er hlekkur á öll þau lög sem Jói Bjarki hefur birt á Spotify: