Fara í efni
Menning

Skrímslin tvö snúa aftur á svið um páskana

Litla skrímslið og stóra skrímslið hafa vakið mikla lukku og snúa aftur á fjalirnar um páskana. Mynd: Mak.is

Barnasýningin um litla skrímslið og stóra skrímslið hjá Leikfélagi Akureyrar hefur slegið í gegn um undanfarin misseri. Vegna mikilla vinsælda hefur verið ákveðið að setja aukasýningar í sölu um páskana. 

Sýningin, sem er byggð á vinsælu bókunum hennar Áslaugu Jónsdóttur, hefur slegið í gegn. Hingað til hefur hún verið sýnd í Hofi en verður sýnd í Samkomuhúsinu um páskana. Margrét Sverrisdóttir og Hjalti Rúnar Jónsson leika skrímslin og leikstjórn er í höndum Jennýar Láru Arnórsdóttur.

Miðasala er á tix.is og á mak.is