Fara í efni
Menning

Skissur – fyrsta einkasýning Kötlu

Katla Tryggvadóttir, 18 ára listakona, opnar í kvöld fyrstu einkasýningu sína, í Kaktus í Listagilinu. Sýninguna kallar Katla Skissur.

„Ég var óviss með hvað ég ætti að kalla sýninguna en mér finnst Skissur fullkomið, enda eru þetta mínar uppáhalds skissur. Verkin eru allskonar þar sem ég ákvað að setja mér ekkert eitt þema heldur frekar sýna þau verk sem ég held mest upp á,“ segir Katla í kynningu á sýningunni.

Sýningin stendur yfir helgina. Opið er sem hér segir:

  • Föstudag 18. mars: 20:00-22:30
  • Laugardag 19. mars: 14:00-18:00
  • Sunnudag 20. mars: 14:00-18:00