Sigurhæðir urðu helgur staður í listsköpuninni

Færeyska listakonan Jenný Augustudóttir Kragesteen semur tónlist undir listamannsnafninu FRUM. Hún hefur djúpar rætur á Íslandi, sérstaklega á Akureyri, þar sem hún bjó í þrjú ár og gaf út fyrstu plötu sína For The Blue Sky. Á þessum tíma kviknaði sterk tenging við bæinn, sem átti eftir að móta næstu sköpunarspor hennar. „Ég elskaði að búa á Akureyri og sakna bæjarins mjög. Ég get varla beðið eftir að koma aftur,“ segir hún við blaðamann Akureyri.net, en Jenný var að gefa út nýja plötu síðustu helgi.
„Nýja platan, Whirlpool, er innblásin af náttúrunni, birtunni og þeirri kyrrð sem einkennir Akureyri,“ segir Jenný. „Stærsti hluti plötunnar var skrifaður og unninn í vinnuaðstöðu minni í Sigurhæðum, gömlu skrifstofu skáldsins Mattíasar Jochumssonar sem ég nýtti sem hljóðver. Ég fann strax djúpa tengingu við húsið og andrúmsloftið þar. Það varð helgur staður fyrir mig í þessu ferli.“
FRUM gaf út fyrstu smáskífu sína Birdstone árið 2016, og fékk mikla alþjóðlega athygli fyrir lagið. Hún hefur komið fram á alþjóðlegum tónlistarhátíðum, tónlist hennar hefur fengið spilun í Netflixþáttum og er á spilalistum H&M verslunarkeðjunnar, svo eitthvað sé nefnt.
Nýja platan, Whirlpool, er komin út.
Náttúrutengingin er sterk, en hljóðheimur FRUM er oft á tíðum draumkenndur og villt náttúra Íslands og Færeyja er henni innblástur. Myndir: aðsendar.
Rými, umbreyting og næmni í forgrunni
Að sögn Jennýar er Whirlpool er ljóðrænt og rafrænt ferðalag í gegnum hringiður og umbreytingar lífsins. Verkið sameinar tilraunakennda rafpopp-tónlist með persónulegri dýpt og næmni. Hún tekur fram að hún lagði sérstaka áherslu á að vinna með kvenkyns tónlistarkonum og framleiðendum við gerð plötunnar, til þess að skapa rými þar sem kvenraddir og sjónarhorn fá að njóta sín – bæði í hljóði og sköpunarferli.
Með Whirlpool stígur FRUM inn í nýtt listrænt skeið – þar sem rými, umbreyting og næmni eru í forgrunni. „Og Akureyri, með sínum sérstaka anda, mun ætíð eiga fastan sess í hjarta mínu – sem annað heimili í sköpun og lífi,“ segir Jenný að lokum.
Hér er hægt að hlusta á Whirlpool á Spotify.
Hér er hægt að fylgjast með FRUM á samfélagsmiðlum:
TikTok: https://www.tiktok.com/@frumverse
Instagram: https://www.instagram.com/frumversee/
Facebook: https://www.facebook.com/frumvers