Fara í efni
Menning

Schumann og flautan í Hofi á sunnudaginn

Flaututríóið Aulas Flute Ensemble kemur fram á tónleikum í Hofi á sunnudaginn ásamt Þórarni Stefánssyni pínaóleikara. 

Aulos Flute Ensemble skipa þrír flautuleikarar:

  • Pamela De Sensi
  • Petrea Óskarsdóttir
  • Karen Karólínudóttir

„Robert Schumann sagði eitt sinn að það eina sem væri verra en flauta væru tvær flautur. Markmiðið með þessari efnisskrá er að fá Schumann til að skipta um skoðun!“ segir í tilkynningu frá Tónlistarfélagi Akureyrar.

Þar segir ennfremur: 

Við ímyndum okkur „samtal“ við Schumann þar sem hann fær loksins tækifæri til að venjast þessu frábæra hljóðfæri. Fyrst einni flautu, þá tveimur flautum og loks þrem. Smátt og smátt mun Schumann vonandi fá nýja sýn á flautuna og verður hún þá vafalítið orðin eitt af uppáhalds hjóðfærum hans – ásamt píanóinu auðvitað sem alltaf mun verða efst á listanum. Tónleikunum lýkur á tríó fyrir flautur sem Daníel Þorsteinsson hefur samið fyrir Aulos Ensamble og þar með ætti Schumann að hafa fallið fyrir flautunni

Efnisskrá:

  • Robert Schumann: Arabesque op. 18 fyrir píanó
  • Robert Schumann: Þrjár Rómönsur op. 94 fyrir flautu og píanó Jacques Ibert: Deux Interludes fyrir tvær flautur og píanó
  • Carl Rorich: Burlesque fyrir þrjár flautur og píanó
  • Jean Marie Depelsenaire: Concertino fyrir þrjár flautur og píanó
  • Daníel Þorsteinsson: The Wind Blows fyrir þrjá flautur

Tónleikarnir verða í Hömrum og hefjast kl. 16.00. Smellið hér til að kaupa miða