Samkomuhúsið til sölu? Lestu smáa letrið ...
Er Samkomuhúsið á Akureyri til sölu? 710 fermetrar í hjarta bæjarins og fersentimetraverðið óvenju hagstætt?
Skilaboð í þessa veru hafa sést á auglýsingum víða um bæinn undanfarið og hafa eðlilega vakið athygli, enda ekki á hverjum degi sem eitt þekktasta hús bæjarins er auglýst til sölu. Verðið virðist heldur ekki vera í takt við húsnæðismarkaðinn eins og við þekkjum hann í dag. ..
Samkomuhúsið er um 710 fermetrar samkvæmt auglýsingunum og er talað um 103 krónur á fersentímetrann. Það eitt og sér ætti kannski að gefa vísbendingu um að auglýsingin sé ekki alveg hefðbundin. Þeir sem lesa smáa letrið eða skanna QR-kóðann komast nefnilega fljótt að því að Samkomuhúsið er alls ekki til sölu heldur eru auglýsingarnar hluti af markaðsherferð Leikfélags Akureyrar vegna Fasteignamartraðarinnar, verks sem tekur húsnæðismarkaðinn, fasteignadrauma og þær martraðir sem geta fylgt því að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið til skoðunar.

Kristján Kristjánsson, markaðsstjóri Menningarfélags Akureyrar, segir hugmyndina hafa kviknað á hugarflæðisfundi markaðsdeildarinnar með teymi Leikfélagsins. „Við vorum að velta því fyrir okkur hvernig hægt væri að nýta okkur umfjöllunarefni verksins og færa það út í samfélagið. Leikritið fjallar að miklu leyti um fáránleika húsnæðismarkaðarins og sem hluti af þeim fáránleika fannst okkur tilvalið að setja Samkomuhúsið einfaldlega á sölu!“ segir Kristján.
Í kjölfarið var auglýsingum komið fyrir víða um bæinn, á stóru skjáunum hjá Glerártorgi og Kaupvangsstræti og á leikhúsflötinni sjálfri. „Svo auglýstum við að sjálfsögðu á aðal síðunni sjálfri, Fasteignaleitinni,“ sagði Kristján. Hann segist ekki geta staðfest hvort áhugasamir kaupendur hafi þegar látið til sín taka. „Ég veit reyndar ekki hvort það sé komið eitthvað tilboð í húsið,“ segir hann.

Hvað með þetta heldur sérstaka verð, 103 krónur á fersentímetrann? Þar kemur smáa letrið enn og aftur við sögu. „Fersentímetraverðið er í raun miðað við stærðarhlutfall á sjálfum leikhúsmiðanum, þannig eru þau vísindi,“ segir Kristján að lokum kankvís.
En ef einhver var þegar farinn að sjá fyrir sér nýtt heimili á þremur hæðum með bar og leiksviði í miðbæ Akureyrar verður viðkomandi líklega að láta sig dreyma áfram og í millitíðinni að kaupa miða á sýninguna. Og að sjálfsögðu að lesa smáa letrið næst ...
