Samið um rekstur MAk til fjögurra ára
Akureyrarbær og Menningarfélag Akureyrar (MAk) hafa gert með sér samning um rekstur félagsins á árunum 2026 til 2029. Samningurinn tekur til reksturs atvinnuleikhúss undir merkjum Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Menningarhússins Hofs og Samkomuhússins. MAk tekur jafnframt að sér að sinna áfram lykilhlutverki sem vettvangur fyrir menningarstarfsemi, listviðburði, fundi og ráðstefnur á Akureyri. Greint er frá samningsundirrituninni í frétt á vef Akureyrarbæjar.
Það voru Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Eva Hrund Einarsdóttir framkvæmdastjóri MAk sem undirrituðu samninginn. Heildarrekstrarframlag Akureyrarbæjar á samningstímanum nemur liðlega 1,8 milljarði króna. Framlagið hækkar ár frá ári; verður 395 milljónir króna fyrir árið 2026 og fer upp í 520 milljónir árið 2029.
Ákvæði um lágmarksfjölda leiksýninga og tónleika
Í samningnum er lögð áhersla á öruggan rekstur og góða nýtingu opinberra fjármuna, auk þess sem markmiðið er að efla atvinnustarfsemi í leikhúsi og sinfónískri tónlist á Norðurlandi. Þá er lögð áhersla á fjölbreytt menningarframboð, aukið aðgengi almennings að listviðburðum og sérstaka viðburði fyrir börn og ungt fólk.
- Leikfélag Akureyrar á samkvæmt samningnum að sviðsetja að lágmarki tvö til þrjú leikverk á hverju leikári, annaðhvort sem eigin framleiðslu eða í samstarfi við aðrar sviðslistastofnanir.
- Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á að halda að minnsta kosti fimm tónleika á hverju starfsári og vinna að uppbyggingu fjölbreytts tónleikaframboðs fyrir íbúa Akureyrar og Norðurlands.
Sérstök greiðsla vegna reksturs almenningssalerna
MAk mun einnig reka sérstakan listsjóð, Verðandi, fyrir hönd Akureyrarbæjar og félagsins. Akureyrarbær leggur árlega til 4,2 milljónir króna vegna sjóðsins. Þá greiðir bærinn 2,2 milljónir króna á ári vegna reksturs almenningssalerna í Hofi.
Samningurinn kveður einnig á um rekstur og nýtingu Menningarhússins Hofs og Samkomuhússins. Akureyrarbær er eigandi fasteignanna en MAk annast daglegan rekstur þeirra. Samkvæmt samningnum hefur Tónlistarskólinn á Akureyri fullan umráðarétt yfir tilteknum rýmum í Hofi, og samræma á hagsmuni skólans og MAk með sérstökum þjónustu- og samskiptasamningi.
Samningurinn gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2029. Hann er uppsegjanlegur af beggja hálfu með sex mánaða fyrirvara, en aðilar skulu fyrir mitt ár 2029 taka afstöðu til mögulegrar framlengingar.