Fara í efni
Menning

Rósa Kristín, tyggjó, Eyrin, hestamenn ...

Rit Sögufélags Eyfirðinga, Súlur, er komið út og færir fjölbreytt efni að venju. Kristín Aðalsteinsdóttir ræðir við listakonuna Rósu Kristínu Júlíusdóttur, Jón Ingi Cæsarsson rifjar upp Oddeyri æsku sinnar og hinn kunni hestamaður og söngvari, Þór Sigurðsson, fer með okkur um fjallgarðinn mikla sem skilur að Eyjafjörð og Fnjóskadal, segir í fréttatilkynningu.

Þar segir einnig: „Stóra mix-málið vindur upp á sig í umfjöllun listmálarans Kristins G. Jóhannssonar um Morgankarlana á vegg, fjallað er um fyrsta tyggigúmmíið, Guðrún Sigurðardóttur segir sögu skólastjórans og baráttukonunnar Halldóru Bjarnadóttur og hestamaðurinn góðkunni, Jón Ólafur Sigfússon, rekur sögu Hestamannafélagsins Léttis. Er þá fátt eitt talið af fjölbreyttu efni Súlna sem að þessu sinni færir okkur alls 17 lengri og styttri greinar, ríkulega myndum prýddar.“

  • Myndin er af Fjölnismönnum á ferð og birtist í grein Jóns Ólafs Sigfússonar um Hestamannafélagið Létti í þessu nýjasta hefti Súlna. Myndin er tekin á Þórunnarstræti, ofan Búðargils. Frá vinstri: Kristján Jónsson, aftan við hann Júlíus Brjánsson, Pétur Pétursson, Úlfar Ragnarsson, Þór Sigurðarson, við hlið hans með svartan reiðhjálm Finnur Björnsson, fyrir framan þá Valdimar Valdimarsson, fremst Ragnar Ingólfsson, Sigurður Mikaelsson og Jóhannes Mikaelsson, aftar með fánann Björn Mikaelsson, við hlið hans Ásgeir Ásgeirsson. 

Í tilkynningu frá ritstjóra er bent á að hægt er að gerast áskrifandi að Súlum með því að hringja í síma 863-75299 – eða enda póst á netfangið jhs@bugardur.is.