Fara í efni
Menning

ROKKtónleikar Roks í Hofi á laugardag

Sönghópurinn Rok flytur lög með Scorpions, Heart, Queen, Led Zeppelin og fleirum á tónleikunum ROKK í Hamraborg í Hofi laugardagskvölið 20. maí.

Rok-hópurinn var stofnaður 2020 og þetta er í fyrsta skipti sem hópurinn heldur sína eigin tónleika. Rok samanstendur af fólki með reynslu úr ýmsum áttum, en meðal verkefna sem hópurinn hefur tekið þátt í er tónleikauppfærsla af Hárinu og jólatónleikarnir Jólaljós og lopasokkar, hvort tveggja tónleikar sem framleiddir voru af Rún viðburðum. Hópurinn hefur einnig tekið þátt í jólatónleikum Norðurljósa ásamt fleiri verkefnum. 

Söngvarar eru Guðný Rut Gunnlaugsdóttir, Guðrún Arngrímsdóttir, Guðrún Linda Guðmundsdóttir, Heiður Sif Heiðarsdóttir, Jóhanna Sigmarsdóttir, Jóhannes Bjarki Sigurðsson, Jóna Björg Árnadóttir, Jón Ágúst Eyjólfsson, Maja Eir Kristinsdóttir og Selma Rut Guðmundsdóttir. Stjórnandi er Jónína Björt Gunnarsdóttir en hún syngur einnig með kórnum. Hljómsveitina skipa Guðjón Jónsson, píanó, Hallgrímur Jónas Ómarsson, gítar, Stefán Gunnarsson, bassi, og Valgarður Óli Ómarsson, trommur.

Miðasala er á mak.is. Tónleikarnir hefjast kl. 20.

Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI liststjóði, sem er samstarfverkefni Akureyrarbæjar, Menningarhússins Hofs og Menningarfélags Akureyrar.