Fara í efni
Menning

Ritlistakvöld á LYST með Hildi Knútsdóttur

Hildur Knútsdóttir er leiðbeinandi á ritlistakvöldi Ungskálda sem haldið verður á LYST í Lystigarðinum annaðkvöld, miðvikudagskvöldið 7. október, kl. 20-22.

Ritlistakvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og kostar ekkert inn. Ritlistakvöld Ungskálda er frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp sín eigin verk, að því er fram kemur í tilkynningu. 

Þessa dagana stendur einnig yfir ritlistakeppni Ungskálda, sem er opin fyrir öllum á aldrinum 16-25 ára á Norðurlandi eystra. Frestur til að senda inn verk er til og með 1. nóvember. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd, en þeir þurfa þó að vera á íslensku og frumsamið hugverk, unnir án aðkomu gervigreindar. Vegleg peningaverðlaun eru veitt fyrir efstu þrjú sæti ritlistakeppninnar. Dómnefnd mun kunngera úrslit í ritlistasamkeppni Ungskálda 2026 við hátíðlega athöfn á Amtsbókasafninu mánudaginn 16. nóvember.

  • Ungskáld er verkefni á Akureyri sem miðar að því að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.
    Verkefnið hófst árið 2013 og er það eina sinnar tegundar á landinu. 

Leiðbeinandi á ritlistakvöldinu á LYST verður Hildur Knútsdóttir. Hún hefur skrifað fjölda bóka fyrir ungmenni og fullorðna auk leikrita og smásagna. 

Boðið verður upp á veitingar fyrir skráða gesti - skráningarhlekkur hér. 

 

 

 

Að Ungskáldaverkefninu standa Amtsbókasafnið á Akureyri, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg og Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.