Fara í efni
Menning

Réttir, fé og fjallaskil í Dalvíkurbyggð

Út er komin bók Vignis Sveinssonar um réttir, fé og fjallskil í Dalvíkurbyggð. Á ríflega 300 síðum segir Vignir frá sauðfjárbúskap á Árskógsströnd, í Svarfaðardal, Dalvík og Upsaströnd á tímabilinu frá 1875 til 2024.

„Fjallað er um smalamennsku, fjallskil og réttir. Fjárskiptin 1949-1951, riðuveikina og fjárskiptin 1988-1990. Brúun vatnsfalla og mikilvægi girðinga fyrir bændur,“ segir í tilkynningu frá Völuspá, sem gefur bókina út.

„Inn í frásögnina fléttar höfundur fróðleiksmolum og örsögum sem með öðru gera bókina framúrskarandi skemmtilega aflestrar. Vel á þriðja hundrað ljósmynda, fjölmargar af nafnkenndu fólki í leik og starfi, auka mjög á heimildar- og skemmtigildi ritsins.“

Útgefandi er Völuspá útgáfa sem fyrr segir en í ritnefnd sátu auk höfundar, Jón Þórarinsson og Sveinn Elías Sveinsson en Daníel Hansen hafði umsjón með verkinu.

Vignir kynnir bókina í máli og myndum klukkan 17.00 í dag, fimmtudag 29. október, í menningarhúsinu Bergi á Dalvík.„ Vænta má óvæntra skemmtiatriða, auk þess sem bókin verður þar boðin gestum á sérstökum vildarkjörum. Og vitaskuld eru allir boðnir velkomnir.“