Fara í efni
Menning

Rakel tilnefnd sem bjartasta vonin

Akureyrska tónlistarkonan Rakel Sigurðardóttir hefur verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem bjartasta vonin. Kosning fer fram á vef RUV. Hér er hægt að kjósa.

Hún „semur nútímalegt popp af stakri snilld og gefur síðan tónsmíðunum ekkert eftir með glæsilegum flutningi sínum. Í fyrra bar hæst lag hennar með JóaPé og CeaseTone, Ég var að spá, sem naut mikilla vinsælda. Hún gaf einnig út smáskífuna Nothing Ever Changes á síðasta ári og hefur vart setið kyrr síðan. Í ár hefur hún gefið út smáskífuna Something, sjö laga plötuna While We Wait og svo gaf hún út lag með sveitinni LÓN, Runaway, sem vakið hefur verðskuldaða athygli – og það er enn bara mars,“ segir á vef RÚV.

Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir árið 2021 verða veitt í Silfurbergi Hörpu miðvikudagskvöldið 30. mars. Rás 2 hefur tilnefnt fimm flytjendur til verðlauna sem bjartasta vonin og þeir eru, auk Rakelar, Árný Margrét, FLOTT, Sucks to be you Nigel og Supersport!

Smellið hér til að hlusta á lagið Ég var að spá