Rakel Hinriksdóttir sýnir „Öðruvísi orð“
Sýning Rakelar Hinriksdóttur Öðruvísi orð – myndræn túlkun á samtali við náttúruna verður opnuð á Bókasafni Háskólans á Akureyri fimmtudaginn 1. október klukkan 16. Þar sameinast myndlist, ljósmyndir og texti í túlkun listakonunnar á sambandi mannsins við náttúruna.
Á sýningunni eru meðal annars svarthvít myndverk unnin með pensli og svörtu bleki, en lituðu verkin eru unnin með akríl- og vatnslitum auk linoleumstimpla. Ljósmyndirnar sem sýndar eru í miðrými sýningarinnar eru teknar á norðurhálendi Íslands.
Textarnir á sýningunni eru valdir úr bókverki sem kemur út samhliða sýningunni. Þar segir frá konu sem leitar út á hálendið eftir að hafa orðið þreytt á samfélagi mannanna, samtölum, kerfum og flækjum. Í hrjóstrugu landslaginu mætir hún einfaldleika og á í eins konar samtali við náttúruna, meðal annars við holtasóley, hraundranga og jökulfljót. Úr sögunni hafa verið valdir textar sem fylgja myndverkum sýningarinnar.
Rakel Hinriksdóttir er listakona, landvörður, fjölmiðlakona og grafískur hönnuður. Hún er jafnframt formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi. Í frétt á vefsíðu HA segir að sýningin byggist m.a. á um fjörutíu ára reynslu hennar af samtali við tilveruna og áhuga hennar á náttúrunni.
Verndun og virðing fyrir náttúrunni hefst með því að hlusta.
Titill sýningarinnar vísar til þeirrar hugmyndar að myndir geti verið eins og orð og að merking þeirra verði til í huglægu rými milli listamanns og áhorfanda. Sama hugsun liggur til grundvallar því samtali við náttúruna sem sýningin hverfist um.
Sýningin í Bókasafni HA er opin á opnunartíma safnsins. Á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum er opið klukkan 8–16 en á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 8–18. Sýningaropnun verður fimmtudaginn 1. október klukkan 16 og léttar veitingar verða í boði fyrir gesti.