Fara í efni
Menning

Ragnheiður sýnir á Blönduósi í allt sumar

Ragnheiður Björk Þórsdóttir veflistakona opnar sýninguna Þráðlag á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi næsta sunnudag, 29. maí, klukkan 14.00. 

„Verkin á sýningunni eru unnin í gagnbindingar vefstól, stafrænum TC2 vefstól og pappír, og flest unnin á þessu og seinasta ári,“ segir í tilkynningu.

„Viðfangsefni Ragnheiðar á þessari sýningu er uppbygging og áferð vefnaðarins og hvernig þáttur uppistöðu og ívafs breytist við val á aðferðum sem notaðar eru í ferlinu. Hún nýtir sér bæði hliðrænar og stafrænar aðferðir við vefinn og ferðast frá hinu einfalda til hins flókna. Ragnheiður hefur lengi rannsakað vefnaðarmunstur og uppbyggingu þeirra og að þessu sinni hafa sum verkin tengingu við safnmuni á Heimilisiðnaðarsafninu og einnig við Halldóru Bjarnadóttur og ævi hennar.“

Ragnheiður er með vinnustofu á Grenivík og er í hlutastarfi sem sérfræðingur á sviði vefnaðar og hjá Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi.  Sýning hennar á Heimilisiðnaðarsafninu stendur yfir þar til 31. ágúst og verður opin alla daga frá klukkan 10 til 17.