Ragnar Hólm er Utan vega í nýrri sýningu
Ragnar Hólm Ragnarsson opnar sýninguna Utan vega í Mjólkurbúðinni á Akureyri í dag, laugardaginn 17. október klukkan 14. Á sýningunni gefur að líta ný olíumálverk sem öll eru unnin á þessu ári.
Ragnar hefur á undanförnum árum verið iðinn við vatnslitamálun og stóð meðal annars fyrir Vatnslitahátíð Íslands, sem haldin var á Akureyri um miðjan september. Að þessu sinni snýr hann sér hins vegar að olíulitum, en hann segir sköpunarferlið vera töluvert frábrugðið því sem hann á að venjast við vatnslitina.
„Mér finnst best að klára vatnslitamyndir að mestu í einni atrennu en ég gef mér miklu meiri tíma í olíumálverkin. Líklega fara fleiri klukkustundir í að velta þeim fyrir sér, horfa og hugsa, en að ota að þeim penslinum,“ segir Ragnar.
Hann lýsir því hvernig tíminn fer í að finna rétta taktinn, litina og formin áður en málverkin taka endanlega á sig mynd. „Maður er lengi að finna rétta taktinn, réttu litina og formin, áður en málverkin koma loks inn til lendingar og setjast, eins og ég orða það gjarnan,“ segir hann.
Sýningin Utan vega verður opin um helgina kl. 14-17 og einnig um næstu helgi, laugardag 24. október og sunnudag 25. október kl. 14-17.