Purrkur Pillnikk – Öllu gleymt og ekkert lært!
Hin goðsagnakennda hljómsveit Purrkur Pillnikk leikur í fyrsta skipti á Akureyri á laugardaginn, þegar hún heldur tónleika á Græna hattinum. Purrkurinn var mjög áberandi í eitt og hálft ár, 1981 og 1982; gaf á þeim tíma út ein 40 lög á fjórum plötun en lagði upp laupana og þráðurinn var ekki tekinn upp á nú fyrr fyrir rúmum þremur árum.
Hljómsveitina skipa Einar Örn Benediktsson söngvari, Bragi Ólafsson bassaleikari, gítarleikarinn Friðrik Erlingsson og Sigtryggur Baldursson trommuleikari. Ásgeir Bragason, sem lamdi húðir með Purrkinum á sínum tíma, féll frá árið 2015.
Í nóvember gefur hljómsveitin út plötuna „& aftur“ – það er dágóður tími á milli platna, 44 ár! „Ég veit ekki alveg hvar ég ætti að byrja,“ segir Einar Örn um það hvenær og hvers vegna hljómsveitin kom saman á ný. Nefnir þó árið 2023 þegar Purrkur Pillnikk fór í hljóðver til að taka upp fimm lög „sem aldrei voru tekin upp 1982. Þetta var lagabálkurinn Orð fyrir dauða. Í kjölfarið kom út samansafnskassinn Orð fyrir dauða sem hafði allt það sem hljómsveitin hafði gefið út.“
14 ný lög
