Fara í efni
Menning

Pétur Magnússon sýnir í Einkasafninu

Ávaxtamauk, myndlistarsýning Péturs Magnússonar, verður opnuð í Einkasafninu Eyjafjarðarsveit laugardaginn 18. júní klukkan 15. Pétur er fyrsti gestur Einkasafnsins sumarið 2022 . Sýningarstjóri er Aðalsteinn Þórsson.

Pétur Magnússon fæddist í Reykjavík árið 1958. Eftir menntaskóla fór hann í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðan á Accademia delle belle Arti Bologna og að lokum í Rijksakademie van Beeldende Kunsten í Amsterdam, að því er segir í tilkynningu. „Hann var búsettur í Amsterdam til ársins 2003, en flutti þá til Íslands. Í Hollandi tók hann þátt í stofnun listaverkabókabúðarinnar Boekie Woekie sem jafnframt er gallerí og útgefandi. Hann starfaði með fyrirtækinu fyrstu árin. Pétur lærði málun á Ítalíu og grafík í Hollandi. Með tímanum hefur hann fært sig yfir í ljósmyndir og skúlptúr, oft lágmyndir. Verk hans láta reyna á skynjunina og ögra henni meðan þau bjóða upp á nýja möguleika til að skynja umhverfið. Efni og fjarvídd spila oft stórt hlutverk í að eiga við umhverfið á heimspekilegan og skoplegan máta.“

Vefsíða Péturs 

Sumarlistamenn Einkasafnins

„Þriðja sumarið í röð býður Einkasafnið-umhverfislistaverk upp á sýningarröð listafólks sem hefur verið boðið til dvalar í safninu og sýnt afrakstur vinnu sinnar í safnhúsinu og umhverfis það. Listafólkið hefur unnið út frá þeim áhrifum sem það hefur orðið fyrir meðan á dvölini stendur. Pétur Magnússon er sjötti sumarlistamaðurinn sem sýnir í safninu. Á undan honum hafa listamennirnir: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Arna G. Valsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Joris Rademaker og Kristín Reynisdóttir dvalið og sýnt í safninu. Einkasafnið er sýningastaður í gróðurvin í lækjardragi með skoppandi læk, 10 km sunnan Akureyrar. Þar er boðið upp á einveru og takmarkuð þægindi í litlu húsi.“

Einkasafnið er verkefni myndlistamannsinns Aðalsteins Þórssonar. Það hýsir safn Aðalsteins „á því sem verður eftir“ af eigin neyslu, eins og segir í tilkynningunni. „Með því er reynt að gefa eins heillega mynd af fyrirferð einstaklingsins í umhverfinu og hægt er. Leitast er við að það sé sjálfbær eining hvað varðar orkuöflun og meðferð úrgangs. Með það að markmiði að vera í jafnvægi við náttúru og umhverfi. Söfnunin hófst 2001, Safnið hefur verið í núverandi húsnæði frá 2018.“

Sýningin er opin helgarnar 18. - 19. og 25. - 26. júní. frá 14:00 - 18:00. Sýningin er einnig opin eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 7829015.

Einkasafnið stendur við syðri enda þjóðvegs 822 Kristnesvegar uþb. 10 km sunnan Akureyrar. Vefsíða: www.steini.art