Fara í efni
Menning

Päivi Vaarula: Undir húðinni í Deiglunni

Päivi Vaarula gestalistamaður mánaðarins sýnir verk sín í Deiglunni um helgina. Sýningin verður opin frá kl. 14.00 til 17.00 bæði í dag og á morgun.

Päivi Vaarula er finnskur textíllistamaður sem vinnur í Gestalistavinnustofu Gilfélagsins í apríl 2023. Hún hefur lagt stund á textíllist í 40 ár og er með meistaragráðu í henni.

„Ég þýði lífið á tungumál textílsins. Markmið mitt sem listamanns er að segja sögur og kanna líf konu. Ég endurspegla tilfinningar, næmi, hugmyndir og viðhorf inn í list mína. Hughrif mín geta breytist hratt og þá fylgi ég eðlishvötinni minni og nýtt inntak skapar nýtt verk,“ segir hún í tilkynningu.

Þetta er fimmta listamannadvöl Päivi á Íslandi. Auk þess bjó Hún og kenndi verkgreinar og textíl í Hallormsstaðaskóla á árunum 2017-2019.

„Þann tíma sem ég hef starfað sem listamaður hef ég verið að rannsaka þær tilfinningarnar sem bærast undir húðinni. Fyrsta viðbragð var að ýta óþægilegum tilfinningum upp á yfirborðið og þá urðu þær ein af annarri jákvæðari og jákvæðari. Ég var að móta fiskileður (roð) og lét efnið tala til mín. Þá þróuðust formin í höndum mínum út frá þeim hugsunum og hugmyndum sem ég hafði.“

Päivi sýnir einnig í Mjólkurbúðinni sal Myndlistarfélagsins með Ragnheiði Björk Þórsdóttur dagana 14. til 23. apríl sýninguna nefna þær Teksti- Texti.