Fara í efni
Menning

Óvenjulegur viðburður og fjölbreyttur í Hofi

Kolbeinn Jón Ketilsson, óperusöngvari sem búsettur er í Noregi, stendur fyrir viðburði í Hömrum í menningarhúsinu Hofi um næstu helgi þar sem fram kom með honum „úrvals listamenn hver á sínu sviði og óhætt að segja að um óvenjulegan og fjölbreytilegan listviðburð sé að ræða,“ eins og hann orðar það.

Auk Kolbeins kom fram Matthildur Anna Gísladóttir, sem leikur með honum á píanó, Marinó Máni Mabazza flytur tvö stutt dansverk sem sérstaklega voru samin af þessu tilefni við tónlist eftir Guðna Franzson og einnig mun Pétur Eggerz leikari flytja söguþátt um Þormóð Torfason (1636-1719), „þann merkilega mann,“ segir Kolbeinn. „Auk þess verður skotið inn örstuttum sögubrotum úr sameiginlegri sögu Íslands og Noregs fyrstu aldirnar eftir landnám og fallegum myndum varpað á tjald á sviðinu sem undirstrika það sem þar fer fram. Flutt verða mörg fegurstu sönglög Sigvalda Kaldalóns og Edvards Grieg sem segja má að séu helstu fulltrúar rómantískrar tónlistar beggja landa. Snilldarlegar þýðingar Reynis Axelssonar á ljóðum Grieg söngvanna verða lesnar áður en lögin eru sungin.“

Dagskráin var flutt í Salnum í Kópavogi í febrúar sl. við frábærar undirtektir tónleikagesta og leikurinn verður endurtekinn síðar á þremur stöðum í Noregi, m.a. í Drammen og Osló.