Fara í efni
Menning

Ótrúlega gaman að vinna með Sinfó Norð

Friðrik Dór Jónsson og SinfoniaNord koma saman á tvennum tónleikum í Hofi á morgun, laugardag. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson og SinfoniaNord halda tvenna stórtónleika í Menningarhúsinu Hofi á laugardag, þar sem tónlist Friðriks verður flutt í útsetningum fyrir sinfóníuhljómsveit. Miðar á tónleikana klukkan 20 seldust nær upp á skömmum tíma og því var bætt við aukatónleikum klukkan 16:30. Enn eru nokkrir miðar lausir á síðari tónleikana.

Í samtali við akureyri.net segir Friðrik Dór að hann hafi ekki þurft að hugsa sig lengi um þegar hugmyndin að samstarfinu kom upp. „Ég sló strax til. Það er ótrúlega gaman að fá tækifæri til að vinna með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands,“ segir hann.

Aðspurður um á hverju áhorfendur megi eiga von segir hann tónleikana verða fjölbreytta blöndu af því sem landsmenn þekkja úr hans lagasafni. „Ég tala stundum um að það séu tvær hliðar á Friðriki Dór. Það er Dansi-Frissi annars vegar og svo Drama-Frissi hins vegar,“ segir hann og hlær.

Þrátt fyrir að um sé að ræða tónleika með sinfóníuhljómsveit hafi hann ekki viljað að dagskráin yrði eingöngu skipuð rólegum ballöðum. „Við erum með allt í bland. Stuðið fær að vera með, ballöðurnar líka og svo það sem Íslendingar elska – singalong,“ segir Frikki og glottir gegnum símann. „Og svo eru líka lög sem eru kannski ekki endilega mín allra þekktustu, en mig hefur lengi langað að heyra í þessum búningi. Ég hafði sterka trú á að þau myndu njóta sín vel með sinfóníuhljómsveit og það hefur sannast.“

Friðrik Dór segist hafa beðið eftir þessum tónleikum í allt sumar og er spenntur að fá loksins að telja í. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Hann segist afar ánægður með útsetningarnar á lögunum, sem unnar hafa verið fyrir tónleikana. Þær eru í höndum Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar og Þórðar Magnússonar. „Já, ég er mjög sáttur við útkomuna. Nú er bara pressan á mér að standa mig og skila mínu, í takti við hljómsveitina,“ segir hann. „Þegar ég kom í Hof í gær var allt orðið ótrúlega flott. Sviðið lítur glæsilega út og ljósin verða líka í hæsta gæðaflokki. Umgjörðin er bara upp á tíu. Enda þýðir ekkert annað en keyra á þetta á fullu og gera þetta almennilega alla leið,“ segir Friðrik.

Hann segist hafa beðið spenntur eftir þessum tónleikum í allt sumar. „Ég er búinn að vera með augun á þessu síðan ég kláraði stóra tónleika í júní. Þannig að maður er búinn að vera að bíða síðan þá að negla í þetta og telja í og fá loksins að gera þetta þannig að maður er bara allur að hólkast upp hérna,“ sagði Friðrik Dór Jónsson með tilhlökkun og er greinilega klár í slaginn.