Óskastund Kristínar Sigfúsdóttur skálds
Fimmtudaginn 18. júní er boðið til 150 ára fæðingarafmælis Kristínar Sigfúsdóttir skálds frá Helgastöðum í Eyjafirði. Viðburðurinn verður kl. 17.00 - 18.00 í dagstofum Sigurhæða á Akureyri.
Leikararnir Hjalti Jónsson, Jón Benónýsson, Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Sunna Borg og Þuríður Jóna Schiöth leiklesa brot úr leikritinu Tengdamömmu sem Kristín skrifaði árið 1920 og var leikið víða um land við miklar vinsældir.
Sigrún Jóhannesdóttir barnabarn Kristínar segir einnig stutt frá eftirminnilegri ömmu sinni.
Umsjón með dagskránni hafa María Pálsdóttir leikari og Kristín Þóra staðarhaldari í Sigurhæðum og er hún unnin í samstarfi við Menningarsjóð Eyjafjarðarsveitar, Akureyrarbæ, Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra og ráðuneyti menningar, háskóla og nýsköpunar.
Óskastund Kristínar er öllum opin og enginn aðgangseyrir er að viðburðinum.