Fara í efni
Menning

Orkester Norden, Græni og ný myndlist

Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í hverri viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. 

Viðburðum á Listasumri er lokið þetta árið en áfram verður þó hægt að njóta listar af fjölbreyttu tagi. Lokatónleikar 40. starfsárs Sumartónleika í Akureyrarkirkju eru á sunnudaginn og Orkester Norden kemur fram í Hofi á laugardag. Björg Eiríksdóttir opnar sýningu í Mjólkurbúðinni og þekkt nöfn á innlendan og alþjóðlegan mælikvarða verða á Græna hattinum, svo eitthvað sé nefnt.

 

Tónleikar

  • The Vintage Caravan – Græna hattinum, föstudag 24. júlí kl. 21. 20 ára afmælisfögnuður The Vintage Caravan. Hljómsveitin mun flytja efni af öllum plötunum sínum.
  • Orkester Norden – Hofi, laugardag 25. júlí kl. 16. Orkester Norden er eitt af mörgum norrænum samstarfsverkefnum Lionshreyfingarinnar. Hljómsveitin er hvert ár skipuð 40-80 hæfileikaríkum ungmennum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem eru sérstaklega valin til þátttöku eftir strangt inntökuferli. Þrír ungir íslenskir hljóðfæraleikarar leika með hljómsveitinni að þessu sinni.
  • Sumartónleikar - Andrew J. Yang – Akureyrarkirkju, sunnudag 26. júlí kl. 17-18. Andrew J. Yang leikur úrval píanóverka, m.a. eftir Brahms, Chopin, Rachmaninoff og Ravel, sem hverfast um endurminningar og nostalgíu. Einnig flytur hann eigin frumsamin píanóverk byggð á minningum frá Patreksfjarðarárum sínum og ferðalögum. Á tónleikunum frumflytur Andrew fjórða tónverkið sem pantað var í afmælisgjöf til Sumartónleika og tónleikagesta, en það er úr smiðju Andrews sjálfs. Þetta eru lokatónleikar 40. starfsárs Sumartónleika í Akureyrarkirkju.
  • Ásgeir Trausti – Græna hattinum, sunnudag 26. júlí kl. 21. Ásgeir Trausti ásamt hljómsveit spilar nýtt og gamalt efni. Ásgeir gaf út plötuna Julia 13. febrúar sl. sem hefur fengið frábærar viðtökur úti um allan heim, að því er segir í kynningu.
 

Á lokatónleikum 40. starfsárs Sumartónleika í Akureyrarirkju á sunnudaginn leikur Andrew J. Yang úrval píanóverka.

 

Viðburðir

    • Krítar og klettasalat – Amtsbókasafninu, fimmudag 23. júlí kl. 10-12. „Komdu og njóttu dagsins á útisvæði safnsins! Við uppskerum saman í samfélagsgarðinum þar sem hægt verður að taka með sér klettasalat og annað grænt heim. Einnig verða krítar í boði fyrir gesti til að teikna og skapa á útisvæðinu,“ segir í kynningu.
    • Sumarlestrargleði með Gunnari Helga – Amtsbókasafninu, mánudag 27. júlí kl. 16-17. „Gunni Helga ætlar að kíkja í heimsókn til okkar og hjálpa okkur að efla áhugann á sumarlestri. Hann ætlar að lesa upp úr einni eldri bók og svo úr splunkunýrri bók sem hann er að vinna að núna,“ segir í kynningu.

Rithöfundurinn Gunnar Helgason kemur í heimsókn á Amtsbókasafnið á mánudaginn og les úr bókum sínum.

 

Listsýningar

Björg Eiríksdóttir opnar sýninguna Nánd í Mjólkurbúðinni á laugardaginn kl. 14.


Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.