Fara í efni
Menning

Orgelkrakkarnir fengu heiðursviðurkenningu

Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti við Akureyrarkirkju og Möðruvallakirkju, og Guðný Einarsdóttir, starfssystir hennar við Háteigskirkju í Reykjavík fengu á dögunum heiðursviðurkenningar í kirkjutónlist fyrir verkefni sitt, Orgelkrakkar. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, afhenti viðurkenningarnar þegar Dagur tónlistarinnar var haldinn hátíðlegur í Hjallakirkju. 

Verkefnið Orgelkrakkar hefur vakið mikla athygli en þar kynna Sigrún Magna og Guðný börnum leyndardóma pípuorgelsins. Börnin smíða þá orgel og prófa að leika á það.

Áður en heiðursviðurkenningin fór fram flutti Sigrún Magna orgelverk eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur sem samið var sérstaklega fyrir hana. Verkið heitir Mildi sorti og er í þremur köflum, Svarta nánd, Svarta kæti og Svarta rausn.

Í kynningu á verkinu sagði Sigrún Magna: „Við Steinunn, sem er sellóleikari auk þess að vera tónskáld, höfum unnið mikið saman undanfarin ár og nánast eingöngu flutt verk eftir konur, bæði ný og gömul. Hún hefur líka samið verk fyrir orgel og selló sem við höfum frumflutt.“

Eftir afhendingunar flutti Guðný verk, sem einnig var samið sérstaklega fyrir hana. Verkið heitir Birting, Arngerður María Árnadóttir tónskáld og organisti samdi verkið sumarið 2022. Verkið hefur verið hljóðritað og er að finna á nýútkominni plötu sem heitir Himindaggir.

Frábær kynning á orgelinu

Við athöfnina í Hjallakirkju sögðu Guðný og Sigrún frá því hvernig hugmyndin að verkinu varð til: Haustið 2020 keyptu þær í sameiningu lítið orgel frá Hollandi sem er þannig úr garði gert að hægt er að taka það í sundur og setja saman. Orgelinu er raðað saman pípu fyrir pípu og er í uppbyggingu og virkni eins og hefðbundið mekanískt orgel.

„Samsetning orgelsins er því frábær kynning á pípuorgelinu og hvernig það virkar. Lítill hópur barna er um það bil 40 mínútur að setja orgelið saman og hægt er að prófa að spila á það,“ sögðu þær í kynningunni.

„Guðný og Sigrún stofnuðu félagið Orgelkrakkar í kringum litla orgelið og skemmtilegar kynningar á orgelinu fyrir börn. Þær hafa saman og sitt í hvoru lagi farið víða með orgelið og eru vinnusmiðjurnar orðnar 100 talsins og því um það bil 1000 börn um allt land sem hafa prófað að setja saman orgelið. Í haust stefna þær að því að vera með vinnusmiðjur og orgelhátíðir fyrir börn á Austfjörðum,“ segir í kynningu á verkefninu.

„Verkefnið hefur hlotið ýmsa styrki m.a. frá Barnamenningarsjóði, Tónlistarsjóði, Héraðssjóðum prófastsdæmanna, söngmálastjóra, Tónskóla þjóðkirkjunnar, og fleiri aðilum, en einnig hlutu þær Sigrún og Guðný starfslaun listamanna í þrjá mánuði á síðasta ári.“

Mikilvægur menningararfur

„Það sem hefur glatt okkur einna mest í þessu verkefni er að upplifa það hvað börnum á öllum aldri og af báðum kynjum finnst orgelið áhugavert. Þau eru svo opin og fordómalaus og flest þeirra hafa ekki upplifað orgel áður, mögulega aldrei séð eða heyrt í því enda eru hljóðfærin mjög staðbundin,“ sögðu þær stöllur í þakkarávarpi eftir þær tóku við viðurkenningunni.

Frumkvöðull DO-orgelsins er frá Hollandi og heitir Lydia Vrogindeweij, mikil áhugamanneskja um kirkjumenningu en hún er ekki organisti sjálf heldur útgefandi og hóf verkefnið um DO-orgelið (litla orgelið) upphaflega á eigin vegum.

„Í Hollandi eru mörg af bestu orgelum heimsins en þar í landi stendur kirkjan frammi fyrir miklum áskorunum, kirkjum er lokað, almenn tónlistarmenntun er bágborin og færri og færri nemendur sækja í orgelnám.

Þetta er því miður staðan víða um heim en Lydia og fleiri frumkvöðlar hafa blásið til sóknar, ekki síst til að standa vörð um mikilvægan menningararf og vilja hvetja organista og kirkjufólk til að standa með sínum sérkennum og vera stoltir sendiherrar þess mikilvæga menningararfs sem kirkjan á og enginn annar en hún sjálf hlúir að.“

Um 1000 börn hafa sett orgelið saman

Þær sögðu ýmis mjög skemmtileg frumkvöðlaverkefni hafa sprottið upp á síðustu árum, verkefni sem stuðli að aukinni þekkingu almennings gagnvart kirkjulegri menningu; sennilega er DO-orgelið það þekktasta og skemmtilegasta, sögðu þær, en í síðasta mánuði voru 10 ár síðan verkefninu var komið á fót.

„Við kynntumst DO-orgelinu í Stokkhólmi haustið 2019 þegar við vorum þar á orgelhátíð ásamt hópi íslenskra organista. Við urðum strax hugfangnar af þessu verkefni og ákváðum að þetta skyldum við gera á Íslandi. Fullar eldmóðs hófumst við strax handa þegar heim var komið við styrkumsóknir og kynningar en fengum einungis neitanir. Þá tókum við ákvörðun um að kaupa sjálfar litla orgelið og fjármagna orgelkrakkavinnusmiðjur. Haustið 2020 kom orgelið til landsins og í febrúar 2021 var fyrsta vinnusmiðjan haldin í Hrísey.“

Eftir það fór boltinn að rúlla og í dag þær Sigrún Magna og Guðný haldið um 100 vinnusmiðjur og u.þ.b. 1000 börn sett litla orgelið saman.

„Félaginu okkar, Orgelkrakkar, hefur vaxið fiskur um hrygg og er í stöðugri þróun. Það hefur bæði það markmið að standa fyrir skemmtilegum orgelkynningum og tónleikum fyrir börn en hefur líka safnað saman orgelnámsefni fyrir börn. Framtíðarsýn okkar er að félagið geti verið stuðningur og eins konar hreiður fyrir börn sem stunda orgelnám og kennara þeirra og standi fyrir viðburðum fyrir unga orgelnemendur. Í dag eru, eftir því sem við best vitum, 8 börn og ungmenni yngri en 18 ára sem stunda orgelnám. Þessir ungu orgelnemendur eru jafnframt virkir þátttakendur í kirkjustarfi en hluti námsins er að koma fram við messur og guðsþjónustur og taka þátt í kirkjustarfi.“

Þær segja orgelnám barna því frábæra viðbót við barnastarf í kirkjum enda tilgangur alls starfs með börnum að víkka sjóndeildarhring þeirra, þroska sjálfstæða hugsun og búa til jákvæðar og góðar minningar.

„Á síðasta ári fengum við tækifæri til að fara um landið með orgelhátíðir fyrir börn og við erum bæði þakklátar og hrærðar yfir hvað okkur hefur allsstaðar verið vel tekið. Við viljum nota tækifærið og þakka hjartanlega fyrir allan stuðning og meðbyr sem okkur hefur verið sýndur."