Fara í efni
Menning

Opna sýninguna „Korter í jól“ í Mjólkurbúðinni

Félagar í Myndlistarfélaginu opna í dag myndlistarmessuna Korter í jól í Mjólkurbúðinni í Listagilinu. Opið verður um helgar kl. 14.00 til 17.00 og dagana fyrir jól.

„Sýningin endurspeglar það sem listamenn hér fyrir norðan eru að fást við og ber vott um gróskumikið listalíf. Flest verkin á messunni eru til sölu. Við hvetjum alla til að koma við í Mjólkurbúðinni!“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Eftirtaldir listamenn sýna verk sín:

  • Aðalheiður Sigríður Eysteinsdóttir
  • Hekla Björt Helgadóttir
  • Aðalsteinn Þórsson
  • Borghildur Guðmundsdóttir
  • Ólafur Sveinsson
  • Ásta Bára Pétursdóttir
  • Hjördís Frímann
  • Guðbjörg Ringsted
  • Rósa Kristín Júlíusdóttir
  • Karl Guðmundsson
  • Egill Logi Jónasson
  • Ragnar Hólm Ragnarsson
  • Sara Sif
  • Rósa Njálsdóttir
  • Björg Eiríksdóttir
  • Guðrún Hadda Bjarnadóttir
  • Anna Þóra Karlsdóttir
  • Dagrún Matthíasdóttir
  • Jonna, Jónborg Sigurðardóttir
  • Kristinn G. Jóhannsson
  • Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
  • Brynhildur Kristinsdóttir
  • Hrefna Harðardóttir
  • Arna G. Valsdóttir
  • Karólína Baldvinsdottir
  • Freyja Reynisdóttir

Sýningarstjórar eru Magnús Helgason, Aðalsteinn Þórsson og Brynhildur Kristinsdóttir.