Fara í efni
Menning

Ópera þjóðarinnar af stað með glæsibrag

Hildigunnur Einarsdóttir og Gunnar Björn Jónsson, tveir af fjórum einsöngvurum Óperunnar, á sviðinu í Hofi í gær. Myndir: Barði Westin

Stofnun Óperunnar, fyrstu þjóðaróperu Íslendinga, eru vitaskuld merkileg tímamót í menningarsögu landsins og stundin því stór þegar fyrst er sungið og spilað opinberlega í hennar nafni. Sú stund rann upp í gær; frumraunin, söngdagskráin Undir sömu stjörnu, var þá í menningarhúsi okkar Akureyringa þar sem bekkurinn var þétt setinn og stemningin framúrskarandi.

Fjórir einsöngvarar Óperunnar komu fram ásamt akureyrskum gestasópran, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands lék og tveir norðlenskir kórar tóku einnig þátt í veislunni, Kór Akureyrarkirkju og Kammerkór Norðurlands. Þá voru leikararnir Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason í  mikilvægum hlutverkum leiðsögumanna um óperusöguna.


„Ég var þar!“
kann einhver að segja þegar fram líða stundir og vísar þá til þessa fallega sunnudagssíðdegis í Hofi sem var bæði fróðlegt og bráðskemmtilegt. Rifjar ef til vill upp í huganum músík Wagners eða Verdis eða Mozarts, mögulega kaflann úr Þrymskviðu Jóns Ásgeirssonar, fyrstu íslensku óperunnar í fullri lengd, eða jafnvel hlutann úr fyrstu íslensku óperunni sem systurnar Jórunn og Drífa Viðar hófu að semja um miðja síðustu öld í New York. Þær luku reyndar aldrei við verkið og ekkert úr óperunni hafði verið flutt opinberlega þar til í gær að Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Gunnar Björn Jónsson sungu eina aríu.

„Ég var ekki þar!“ gætu líka margir rifjað upp því vont veður setti það strik í reikninginn í gær að öllu flugi var aflýst innanlands. Meðal þeirra sem misstu af gleðinni af þeim sökum voru forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Logi Einarsson menningarráðherra. Það gerist ekki á hverjum degi að maður þakki fyrir vont veður og varla við hæfi en sannleikurinn er þó sá að vegna þessa reiðikasts veðurguðanna nældi sá sem þetta skrifar í miða á síðustu stundu. Síðasta miðann. Fyrir það ber a.m.k. að þakka.

„Það eru vissulega tímamót þegar við sem samfélag ákveðum að setja á fót nýja listastofnun og þess vegna er réttmætt að spyrja: hvers vegna? Hvað er ópera og hvað er hún Íslendingum?“ sagði Finnur Bjarnason óperustjóri þegar hann ávarpaði viðstadda og bauð hjartanlega velkomna á þennan fyrsta viðburð nýrrar Óperu.

„Þessu ætlum við að velta fyrir okkur í dag og njóta þess að hlýða á nokkra hápunkta óperusögunnar um leið og við setjum hana í samhengi við íslenska sögu og menningu. Það að við skulum fagna þessum degi hér í Hofi er til marks um hve langt við höfum náð á síðustu áratugum. Áður en Þjóðleikhúsið var vígt árið 1950 og sinfóníuhljómsveitin stofnuð sama ár var nánast ógerningur að flytja óperur á Íslandi. Nú getum við opnað fyrstu ríkisóperu Íslendinga hér á Akureyri í glæsilegu menningarhúsi, með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og kórum frá Akureyri,“ sagði óperustjórinn.

Óperan er rekin sem hluti af Þjóðleikhúsinu og hefur aðalaðsetur í Hörpu en hefur sett sér það markmið að færa óperulistina nær landsmönnum öllum og hefur starfsemina utan höfuðborgarsvæðisins. Opnunarviðburðurinn í Hofi er sá fyrsti af fimm sem haldnir verða víðs vegar um landið á næstu vikum, en að Akureyri lokinni liggur leiðin meðal annars til Eskifjarðar, Skálholts og Reykjanesbæjar og loks í Þjóðleikhúsið.

Þverskurður þjóðarinnar, var sagt til útskýrigar á klæðnaði kóranna tveggja. Skemmtileg útfærsla og vel til fundið.

„Ef við viljum reyna að skilja erindi óperulistar á þessum hvikula tíma mætti kannski leita ennþá lengra til baka í íslenskri menningarsögu en þau ríflega 400 ár sem óperusagan spannar,“ sagði Finnur – alla leið aftur til Hávamála:

Ungur var eg forðum,
fór eg einn saman:
þá varð eg villur vega.
Auðigur þóttumst
er eg annan fann:
Maður er manns gaman.

„Hér er sannur auður ekki mældur í krónum og aurum heldur í því ríkidæmi sem felst í að deila hugsunum sínum, gleði og sorg, með öðrum,“ sagði Finnur.

„Listin lyftir huganum í stærra samhengi – við skynjum okkur sem hluta af heild, jafnvel einhvers konar eilífð. Halldór Laxness notaði gjarnan tónlistarlíkingar, líkt og kraftbirtingarhljóm guðdómsins eða hinn eina sanna tón, þegar hann vísaði til æðra samhengis. Og þótt tónlist sé á suman hátt eins og ljósið eða vindurinn nær hún að búa til einhvern sameiginlegan veruleika og merkingu úr loftinu sjálfu, hún er í senn abstrakt og sönn,“ sagði Finnur Bjarnason.

„Leiklistin kafar aftur á móti ofan í sammannlegan veruleika og hin flóknu samskipti mannanna á milli. Óperan setur þessa tvo heima saman, hið óhlutstæða og hið mannlega: afbrýðisemi í kröftugum rytma, reiði í nístandi tónum, fyrirgefning í undraverðum hljómagangi. Galdur óperunnar felst í að sýna manneskjuna í greipum atburðarásar og eigin tilfinninga á sama tíma og áhorfandinn er minntur á hið stærra samhengi, jafnvel eilífðina.“

  • Einsöngvararnir sem ráðnir hafa verið til starfa hjá Óperunni eru Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir, messó-sópran, Gunnar Björn Jónsson, tenór, og Kristján Ingi Jóhannesson, baritón, en auk þeirra söng í Hofi í gær akureyrski gestasöngvarinn Jónína Björt Gunnarsdóttir, sópran.
  • Með þeim léku og sungu Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju og Kammerkór Norðurlands. Leikararnir Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir leiddu áhorfendur í gegnum óperusöguna, en handrit og leikstjórn voru í höndum Ólafs Egils Egilssonar. 
  • Richard Schwennicke, tónlistarstjóri Óperunnar, stjórnaði hljómsveitinni.