Fara í efni
Menning

Ópera, myndlist, tónleikar og handverk

Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í hverri viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.

Í þessari viku má nefna opnunarviðburð Óperunnar í Hofi á sunnudag, þar sem fluttar verða ýmsar perlur óperubókmenntanna. Nóg verður um að vera á Græna hattinum fimmtudag til laugardags og tónleikaröðin Skollamjólk heldur áfram. Leikfélag Akureyrar og Freyvangsleikhúsið frumsýndu leikverk í síðustu viku og sýningar halda áfram í þessari viku. Árleg haustsýning handverks- og hönnunarfólks verður í Hlíðarbæ og Joris Rademaker og Ragnar Hólm opna myndlistarsýningar.

Tónleikar

  • Angurværð – Græna hattinum, fimmtudag 15. október kl. 21. Hljómsveitin var stofnuð á Akureyri árið 2016 og hélt síðast tónleika á Græna hattinum fyrir þrem árum. „Á tónleikunum lofa þau gæða tónlist, frumsamið efni í bland við vandaðar og vel útsettar ábreiður,“ eins og segir í kynningu.
  • Papar – Græna hattinum, föstudag 16. október kl. 21. 40 ára afmælistónleikar Papa.
  • Skollamjólk - Biggi Maus og MEMM – Slímstöðinni, laugardag 17. október kl. 20. „Skollamjólk er haldin mánaðarlega í Slímstöðinni, höfuðstöðvum MBS samsteypunnar. Ein hljómsveit eða atriði kemur fram í hvert sinn þar sem markmið tónleikaraðarinnar er tvíþætt. Að auka bæði fjölda og fjölbreytni tónleika á Akureyri, ásamt því að sérstaða Skollamjólkur felst helst í ríkri áherslu á að fanga tónleikana á hljóð og mynd, vinna úr þeim með sem faglegustum hætti og birta á netinu,“ segir í kynningu.
  • Hjálmar – Græna hattinum, laugardag 17. október kl. 21. „Einhver ástsælasta hljómsveit landsins, Hjálmar, stígur á stokk á einstökum tónleikum. Ekki missa af öllum bestu lögum Hjálma,“ segir í kynningu.
 

Hljómsveitin Angurværð kemur fram á Græna hattinum í kvöld.

Viðburðir

      • Salsa & bachata danskvöld – Vamos, fimmtudag 15. október kl. 20-22. SALSA NORTH í samstarfi við VAMOS býður Akureyringum og nærsveitungum upp á danskvöld annan hvern fimmtudag í vetur. Ókeypis aðgangur.
      • Fasteignamartröðin – Leiksýning Leikfélags Akureyrar í Samkomuhúsinu. Föstudag 16. október kl. 20 og laugardag 17. október kl. 20.
      • Útsynningur – Leiksýning Freyvangsleikhússins í Freyvangi. Föstudag 16. október kl. 20 og laugardag 17. október kl. 20.
      • Norðlensk hönnun og handverk – Hlíðarbæ, laugardag 17. október og sunnudag 18. október kl. 11-17. Vandaðar vörur úr héraði, milliliðalaust úr höndum hönnuða, handverksfólks og sælkerameistara. Kökubasar góðgerðarfélaga, kertasala og fleira.
      • Fjölskylduleiðsögn & listsmiðja – Listasafninu, sunnudag 18. október kl. 11-12. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna,
      • Undir sömu stjörnu – Opnunarviðburður Óperunnar í Hofi. Einvalalið listamanna rekur sögu óperunnar og flytur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar. Sunnudag 18. október kl. 16.

 

Perlur óperubókmenntanna verða fluttar á tónleikum í Hofi á sunnudag á opnunarviðburði Óperunnar.

Listsýningar

Ragnar Hólm opnar sýningu í Mjólkurbúðinni á laugardag á nýjum abstrakt expressjónískum olíumálverkum.


Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.