Ólíkir myndheimar sameinaðir í dagatali
Listakonurnar Unnur Stella Níelsdóttir og Ingibjörg Berglind Guðmundsdóttir hafa leitt saman ólíka myndheima sína í nýju dagatali. Þar blandast akrýlmálverk Unnar Stellu saman við teikningar Beggu á léttan og leikandi hátt, svo úr verður enn sterkari frásögn.
Hugmyndin að samstarfinu kviknaði eftir að þær tvær hittust fyrir tilviljun í sumar en þær hafa þekkt hvor aðra í nokkur ár. Unnur Stella, sem málar undir nafninu StartStudio, segist við það tækifæri hafa spurt Beggu út í dagatölin sem hún hefur búið til undanfarin sex ár en sjálf hafi hún haft löngun til þess að gera sitt eigið dagatal. Þá kom upp sú hugmynd hjá þeim hvort þær ættu kannski bara að vinna saman að dagatali.

Skemmtilegt samstarf hjá listakonum á Akureyri. Unnur Stella málaði matinn og borðið og Begga bætti kokknum við.
Blanda verkunum saman
Upphaflega ræddu þær um að skipta dagatalinu á milli sín og gera sex myndir hvor. Fljótlega kom þó upp sú hugmynd að blanda verkunum frekar saman því þrátt fyrir ólíkan stíl sáu þær fljótt ákveðinn samhljóm í verkum sínum. Unnur segir traustið á milli þeirra hafa skipt miklu máli, enda geti það verið viðkvæmt fyrir listamenn að leyfa öðrum að vinna inn í verk sín. „Við erum báðar mjög opnar fyrir mismunandi hlutum og treystum hvor annarri og getum sagt hreinskilnislega ef okkur líkaði ekki eitthvað,“ segir Unnur Stella sem er mjög sátt við útkomuna sem er hægt að panta á vefsíðu Cave Canem hönnunarstofu sem og í völdum verslunum.
Unnur Stella, sem málar gjarnan matarborð og ummerki um fólk án þess þó að fólkið sjálft sjáist, útskýrir hvernig Begga, sem teiknar gjarnan persónur og hversdagsleg augnablik, tók myndirnar hennar lengra og bætti fólki inn á þær. „Ég vann mín verk og sendi Beggu myndir af þeim sem hún vann svo áfram með stafrænt.“ Þannig urðu til verk þar sem ólíkar áferðir og aðferðir listakvennanna sjást greinilega; akrýlmálverk Unnar Stellu mynda grunninn en persónur Beggu koma inn í myndheiminn og gefa honum nýja sögu. Hvor þeirra fékk svo að myndskreyta sinn eigin afmælismánuð án aðkomu hinnar. Þannig á Unnur Stella mynd apríl mánaðar ein og Begga september.

Begga er grafískur hönnuður og sá hún um umbrotið á dagatalinu. Begga hefur undanfarin sex ár gefið út sín eigin dagatöl en breytir til í ár með samvinnu við Unni Stellu. Mynd: Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir
Umgjörð og fólk
Samstarfið hafi að vissu leyti gert sýnilegt það sem Unnur hafði áður aðeins séð fyrir sér þegar hún málaði. „Ég ímynda mér alltaf fólk við borðhaldið en ég mála fólkið aldrei, ég mála bara ummerkin og umgjörðina, stólana, matinn, leirtauið og svo framvegis en svo einhvern veginn setti Begga fólk inn í verkið.“ Unnur Stella segir útkomuna hafa komið sér skemmtilega á óvart. „Ég átti ekki von á því hversu fallegar myndirnar myndu verða. Þegar Begga sendi mér fyrstu drögin var ég bara: Vá, þetta er bara geðveikt flott.“
Veggdagatalið stendur enn fyrir sínu
Þótt dagatöl flestra séu nú komin í símann telur Unnur Stella að margir kjósi enn að nota gamla góða veggdagatalið. Hún segist sjálf eiga sterkar minningar um slíkt dagatal heima hjá foreldrum sínum, þar sem meðal annars voru skráðir afmælisdagar fjölskyldunnar. „Ég held að fólk sé virkilega farið að átta sig á því að það nennir ekki alltaf að taka upp símann sinn í hvert einasta sinn sem það vill vita eitthvað,“ segir Unnur Stella og bætir við að veggdagatalið innihaldi líka ýmsar upplýsingar sem ekki rata endilega inn á stafræna dagatalið í símanum, svo sem upplýsingar um fullt tungl, upphaf þorra og ýmsa tyllidaga.
Þá er dagatalið líka hugsað þannig að það eigi sér framhaldslíf þegar árið er liðið. Forsíðan er heil mynd án texta og því hægt að setja hana beint í ramma. Þá er einnig hægt að klippa myndir mánaðanna út og ramma þær inn. „Við viljum að verkin lifi áfram,“ segir Unnur Stella. „Auk forsíðunnar ertu með tólf verk í fallegri stærð til að klippa út og ramma inn, gefa sem gjöf eða gera heilan gallerívegg.“

Myndirnar í dagatalinu geta lifað lengur því tilvalið er að ramma þær inn þegar árið er liðið.
Fleiri samvinnuverkefni
Unnur Stella segir samstarfið við Beggu jafnframt hafa kveikt hjá sér aukinn áhuga á því að vinna með öðru listafólki. Og hún er nú þegar að vinna að öðru verkefni með listamanni á Akureyri, þótt hún geti ekki sagt nánar frá því að svo stöddu. „Ég er búin að fá svo mikla orku úr því að vinna með öðrum og ekki alltaf að vera ein. Ég held að það sé líka rosalega mikilvægt, sérstaklega á Akureyri. Af hverju erum við ekki að gera meira saman?“