Fara í efni
Menning

Ólafur Elíasson leikur Bach og Beethoven

Ólafur Elíasson píanóleikari leikur prelódíur og fúgur eftir J.S. Bach úr „velstillta píanóinu“ og sónötu Op. 110 eftir L.V.Beethoven á tónleikum í Hofi næstkomandi sunnudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tónlistarfélagi Akureyrar.

Ólafur var nemandi Rögnvaldar Sigurjónssonar píanóleikara á Íslandi en stundaði svo framhaldsnám fyrst í París hjá hinum heimsþekkta píanóleikara Vlado Perlemuter og síðar í Englandi, m.a. við konunglega tónlistarháskólann í London (Royal Academy of Music). Hann hefur komið fram í þekktum tónlistahúsum á borð við Wigmore Hall í London, Carnegie Hall í New York og Kennidy Center í Washington.

Undanfarin sex ár hefur Ólafur leikið tónlist eftir J.S. Bach á vikulegum tónleikum í Dómkirkjunni í Reykjavík.

Miðasala á mak.is og tix.is. 20% afsláttur fyrir félagsmenn í Tónlistarfélagi Akureyrar. Frítt fyrir 18 ára og yngri.

Tónleikarnir hefjast klukkan 16.00 á sunnudaginn kemur.

Tónleikarnir eru á vegum Tónlistarfélags Akureyrar. Styrktaraðilar eru Akureyrarbær, Rannís og Menningarhúsið Hof.