Fara í efni
Menning

Nýtt lag – Ég er alltaf á leiðinni eitthvert

Mynd: Jóndís Inga Hinriksdóttir

Ágúst Þór Brynjarsson, sem tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í vetur, sendi í dag frá sér nýtt lag sem hann kallar Á leiðinni. Ágúst samdi lagið ásamt Hákoni Guðna Hjartarsyni.

„Á leiðinni fjallar bæði persónulega um síðustu mánuði hjá mér, þar sem ég hef verið mikið á flakkinu milli landshluta – ég er einhvern veginn alltaf á leiðinni eitthvert,“ er haft eftir Ágústi Þór í tilkynningunni, „og það fjallar einnig um tilfinninguna sem allir kannast við; að vera að elta drauma sína og þurfa að fórna einhverju eða missa af. Þú ert að leggja svo hart að þér en værir alveg til í að geta verið líka heima með fjölskyldu og vinum.“

Ágúst Þór, 25 ára Húsvíkingur sem búsettur er á Akureyri, segir lagið samið degi fyrir þriggja ára afmæli sonar hans. Ágúst var þá fyrir sunnan að spila og útlit var fyrir að hann myndi missa af afmælinu vegna óveðurs. „Sem betur fer náði ég síðasta fluginu áður en óveðrið skall á og komst heim í tæka tíð.“

Ágúst á Spotify