Fara í efni
Menning

Nýjar sýningar opnaðar, Purrkurinn og grugg

Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í hverri viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.

Nefna má að í þessari viku verða þrjár nýjar sýningar opnaðar í Listasafninu og ein í Mjólkurbúðinni og tónleikar af fjölbreyttu tagi verða í boði bæði á Græna hattinum og í Hofi.

Tónleikar

  • Davíð Máni & hljómsveit – Græna hattinum, fimmtudag 24. september kl. 21. Davíð Máni var forsprakki hljómsveitarinnar Miomantis en hefur síðan 2025 spilað undir eigin nafni og verið duglegur bæði við tónleikahald og útgáfur. Frá honum kom platan The Mancave Tapes, sem dregur fólk aftur til tíunda áratugarins með hörkulegu gruggrokki, og nú hefur hann lokið upptökum á nýrri plötu undir eigin nafni.
  • Á móti sól – Græna hattinum, föstudag 25. september kl. 21.  „Á móti sól heldur upp á 30 ára starfsafmæli í haust og hvað er betra en að hefja hátíðarhöldin með partýi á Græna hattinum! Öll bestu lögin og verstu brandararnir milli laga,“ segir í kynningu.
  • Purrkur Pilnikk – Græna hattinum, laugardag 26. september kl. 21. Hin goðsagnakennda hljómsveit er komin aftur á kreik og heldur tónleika á Akureyri í fyrsta sinn. „Pönk-rokk-diskó-funk-dans-jazz-metal-progg í fullkominni óreiðu og hávaða,“ segir í kynningu.
  • Frá Fjöllum til Favelas – Menningarhúsinu Hofi, sunnudag 27. september kl. 16. Þetta er tónlistar- og menningarverkefni sem tengir saman brasilíska jazztónlist og íslenskt tónlistarlíf með nýstárlegum hætti. Á tónleikunum verður flutt brasilísk tónlist í ýmsum stílum, blandað efni allt frá 1950 til dagsins í dag. „Þetta verða léttir og skemmtilegir tónleikar sem allir ættu að geta notið,“ segir í kynningu.
 

Næstkomandi laugardagskvöld kemur Purrkur Pilnikk fram á Akureyri í fyrsta skiptið í sögunni.

Viðburðir

    • Pop-Up markaður – Amtsbókasafninu, laugardaginn 26. september kl. 11:30-15:30, í samvinnu við Rauða krossinn. „Hægt verður að kaupa föt, skó og fylgihluti fyrir allan aldur. Frábært tækifæri til að styðja umhverfið og fá geggjuð tilboð,“ segir í kynningu.
    • Armbandagerð – Amtsbókasafninu, laugardaginn 26. september kl. 13-15. Öll velkomin í barnadeildina á safninu til að búa til sitt eigið armband. Allur efniviður á staðnum.
    • Fjölskylduleiðsögn & listsmiðja – Listasafninu, sunnudaginn 27. september kl. 11-12. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, segir börnum og fullorðnum frá þremur sýningum; Í snertingu, Hversdagsland og Hughrif - litir - form II. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna. Aðgangur ókeypis í boði Norðurorku.

Listasafnið á Akureyri og Norðurorka bjóða upp á fjölskylduleiðsögn og listsmiðju í safninu á sunnudaginn.

Listsýningar

Rebekka Kühnis opnar myndlistarsýningu í Mjólkurbúðinni á fimmtudaginn, sem verður opin út helgina.


Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.