Fara í efni
Menning

Nemendasýning VMA í Listasafninu

Nemendasýning listnáms- og hönnunarbrautar VMA, Ginnungagap, opnuð í Listasafninu á Akureyri á laugardaginn, 20. nóvember. Opið er frá klukkan 12 til 17. Sýningin stendur til 28. nóvember.

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í starfsemi listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri. Sýningarnar eru tvær yfir árið, annars vegar í lok vorannar og hins vegar í lok haustannar. Þetta er sjöunda árið í röð sem þær eru haldnar í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.

„Við undirbúning slíkra sýninga velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði þar sem þeim gefst tækifæri til að kynna sér nýja miðla eða dýpka skilning sinn á þeim sem þeir hafa áður kynnst,“ segir í tilkynningu.

„Að baki verkanna liggur hugmynda- og rannsóknarvinna og leita nemendur víða fanga í eigin sköpunarferli, allt eftir því hvað hentar hverri hugmynd og þeim miðli sem unnið er með. Nemendur fá eina önn til að vinna að lokaverkefnum sínum og uppsetningu sýningar í samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og samnemendur þar sem frumkvæði, hugmyndaauðgi og öguð vinnubrögð eru lögð til grundvallar.“

Nemendur

Textíllína: Anna María Hjálmarsdóttir.

Myndlistarlína: Ágúst Gígjar Valdemarsson, Elín Jóhanna Gunnarsdóttir og Snæfríður Ægisdóttir.