Fara í efni
Menning

Myndlistarfélagið opnar sýningu í Hofi

Sýning félaga í Myndlistarfélaginu verður opnuð í Hofi í dag kl. 15.00. Þetta er fjórða sýning hópsins í Menningarhúsinu.

Í tilkynningu segir:

„Akureyri starfar fjölbreyttur hópur myndlistarmanna sem endurspeglar vöxt á sviði myndlistar. Tjáningarform myndlistarinnar birtist okkur á þessari sýningu í verkum sextíu og eins myndlistarmanna sem flestir starfa hér á Akureyri og veita okkur innsýn í myndheim sinn. Myndlist nútímans er marglaga, í senn persónuleg, margslunginn og flókin. Viðfangsefnin fjölbreytt þar sem tekist er á við tilveru í flóknum heimi með aðferðum myndlistar.“

Myndlistarfélagið var stofnað í janúar árið 2008 og er eitt aðildarfélaga Sambands íslenskra myndlistarmanna. Í því eru nú rúmlega 100 myndlistarmenn, flestir búsettir á Akureyri eða á Norðurlandi en félagið er opið öllum myndlistarmönnum. „Í félaginu er fjölbreyttur hópur ólíkra myndlistarmanna sem endurspeglar gróskuna í myndlist á landinu. Myndlistarfélagið rekur Mjólkurbúðina sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri og kappkostar að bjóða upp á framsæknar og fjölbreyttar sýningar erlendra og íslenskra listamanna ásamt því að sýna verk félagsmanna.“

Eftirtaldir eiga verk á sýningunni:

Aðalbjörg María Ólafsdóttir - Adda

Aðalsteinn Þórsson

Anna Gunnarsdóttir

Anna Þóra Karlsdóttir

Arna Guðný Valsdóttir

Ásta Bára Pétursdóttir

Bergþór Morthens

Björg Eiríksdóttir

Borghildur Guðmundsdóttir

Brynhildur Kristinsdóttir

Brynja Harðardóttir Tveiten

Dagrún Matthíasdóttir

Elísabet Ásgríms

Erlingur Valgarðsson

Erwin van der Werve

Freyja Reynisdóttir

Fríða Karlsdóttir

Gillian Pokalo

Guðbjörg Ringsted

Guðmundur Ármann Sigurjónsson

Guðrún H. Bjarnadóttir

Guðrún Pálína Guðmundsdóttir

Guðrún Sigurðardóttir

Halldóra Helgadottir

Hallgrímur Stefán Ingólfsson

Hekla Björt Helgadóttir

Helga Björg Jónasardóttir

Herdís Björk Þórðardóttir

Hjördís Frímann

Hlynur Hallsson

Hólmfríður Bjartmarsdóttir

Hrefna Harðardóttir

Hrönn Einarsdóttir

Jóna Bergdal Jakobsdóttir

Jónasina Arnbjörnsdóttir

Jónína Björg Helgadóttir

Jónína Mjöll Þormóðsdóttir

Jonna Jónborg Sigurðardóttir

Joris Rademaker

Karl Guðmundsson

Karólína Baldvinsdóttir

Kristinn G. Jóhannsson

Kristján Helgason

Marsibil G Kristjánsdóttir

Ólafur Sveinsson

Pia Rakel Sverrisdóttir

Ragnar Hólm Ragnarsson

Ragney Guðbjartsdóttir

Rebekka Kühnis

Rósa Njálsdóttir

Sara Sif Kristinsdóttir

Sigurður Mar

Sólveig Baldursdóttir

Stefán Bessason

Steinn Kristjánsson

Tereza Kocián

Thora Sólveig Bergsteinsdóttir

Vikar Mar