Myndlist: Sýningar opnaðar um helgina
Nokkrar myndlistarsýningar verða opnaðar um helgina á og við Akureyri. Í Flóru á Sigurhæðum verður sýning Brákar Jónsdóttur opnuð og Danielle Robitaille, gestalistamaður Gilfélagsins verður með sýningu í Deiglunni um helgina. Í Mjólkurbúðinni verður opnuð samsýning 10 myndlistarmanna og þá verður úti-samsýning 29 listamanna opnuð við Dyngjuna í Eyjafjarðarsveit. Auk þess má nefna verður boðið upp á sýningarleiðsögn á Listasafninu bæði laugardag og sunnudag, auk listsmiðju á sunnudaginn.
- Föstudagur 29. maí kl. 17 – Deiglan: Gestalistamaður Gilfélagsins, Danielle Robitaille, opnar sýninguna Daily Colors. Tilfinningar eru kjarninn í listferli hennar og hún nálgast þetta viðfangsefni í gegnum gagnalist (e. data art) og tæknilist (e. procedural art), tvær aðferðir sem eru vísvitandi tilfinningalausar. Þessi rannsókn fer aðallega fram í formi stafrænna verka prentaðrar á pappír og skúlptúra. Sýningin er opin til kl. 21 á föstudag en einnig verður hún opin laugardaginn 30. maí kl. 13-21 og sunnudaginn 31. maí kl. 11-15.

Verk eftir Danielle Robitaille.
- Laugardagur 30. maí kl. 13 – Flóra menningarhús: Opnun ársins á Sigurhæðum þar sem Brák Jónsdóttir sýnir nýjar lágmyndir sem hún gerði sérstaklega fyrir þessa sýningu á Sigurhæðum. Boðið verður upp á listamannsspjall með Brák kl. 14 á laugardeginum en sýningin verður opin fimmtudaga til laugardaga kl. 10-17 til 10. október.

Brák Jónsdóttir að undirbúa sýningu sína á Sigurhæðum.
- Laugardagur 30. maí kl. 14 – Dyngjan listhús: Opnunargjörningur Þóru Sólveigar Bergsteinsdóttur, í tilefni opnunar útilistasýningarinnar „Heimalingar 26“, þar sem 29 heimalingar sýna list sína. Sýningin verður opin í allt sumar.

Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir.
- Laugardagur 30. maí kl. 15 – Mjólkurbúðin: Sýningin Enginn fyrirvari er samsýning 10 myndlistarmanna sem opnuð verður í Mjólkurbúðinni. Sýningin stendur til 6. júní.

Enginn fyrirvari í Mjólkurbúðinni er samsýning 10 myndlistarmanna.
Sýningarleiðsögn í Listasafninu og listsmiðja
Listasafnið á Akureyri býður upp á sýningarleiðsögn bæði á laugardaginn og sunnudaginn, auk listsmiðju á sunnudaginn.
- Laugardagur 30. maí kl. 15 – Sýningarleiðsögn: Boðið verður upp á leiðsögn um þrjár sýningar; Andlegar verðmætavindur Magnúsar, S-I-L-I-C-A-0-3 og Sýning um heilagan fugl. Aðgangur er innifalinn í miðaverði Listasafnsins.
- Sunnudagur 31. maí kl. 11 – Fjölskylduleiðsögn og listsmiðja: Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, segir börnum og fullorðnum frá þremur sýningum; Andlegar verðmætavindur Magnúsar, S-I-L-I-C-A-0-3 og Sýning um heilagan fugl. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna. Aðgangur er ókeypis.